21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

1. mál, fjárlög 1932

Magnús Jónsson:

Minni hl. fjvn., sem er aðeins 2 af 7, ég og hv. þm. Borgf., getur ekki fallizt á, að frv. verði samþ. óbreytt. Ég get að ýmsu tekið undir röksemdir frsm. meiri hl., bæði um það, er hann sagði um réttmæti þess, að Nd. breytti frv. eftir að það kemur frá Ed., og eins um till. okkar. En það skilur, að við viljum draga rökréttar ályktanir af þessu. Hann sýndi fram á það, að það er ekki heilbrigt eða sjálfsagt, að Nd. feli Ed. fullnaðarákvörðun um fjárl. Þetta hefir tíðkazt, en það er fjarri öllum sanni, að sú deildin, sem er sterkari og á ýmsan hátt skoðuð aðaldeildin, láti í minni pokann fyrir hinni deildinni.

Það hefir oft verið sagt, að fjárl. versni við langa meðferð. En ég býst ekki við, að hv. Alþ. vilji fallast á þetta, enda er þetta alllagleg sneið til hins háa Alþingis, að lögin verði því verri, því lengur sem það hefir þau til meðferðar. Ég get fallizt á það, að fjárlög eins og önnur lög geti orðið fyrir skemmdarverkum. en þingsköp okkar byggjast á því, að það muni bót að því að fá lög til endurtekinnar meðferðar. Það eru ekki nein tákn á sólu og tungli, þótt Nd. breyti því aftur, sem Ed. hefir breytt. Það þarf ekki stórskyssur að hafa hent Ed., þótt Nd. vilji breyta af nýju.

Ég skal játa, að till. þær, sem minni hl. ber fram nú, eru ekki stórvægilegar. Ef litið er á tölurnar, eru þær mjög smávægilegar. Ein þeirra er ekkert fjárhagsatriði, heldur aðeins um það að nema í burt aths. Önnur hljóðar upp á 500 kr. og sú þriðja 6000 kr. En það, sem gerir það að verkum, að við komum með þessar till., er, að það er vanhirða að láta lögin fara með þessum liðum eins og þeir eru núna.

Frsm. meiri hl. tók af mér ómakið með að mæla fyrir þessum till., og sagði um tvö atriði frv., sem till. okkar eru um, að þau væru ákaflega kynleg.

Í 14. gr. fjárl. hafa verið 500 kr. til kennslu í lagalæknisfræði. Það hefir aldrei neinn amazt við þessari upphæð og hún hefir aldrei verið til umr. En nú er þessi upphæð tekin út úr og önnur sett inn um kennslu í augnlæknisfræði, 1000 kr. En í 12. gr. 5. lið eru líka 1000 kr. til augnlækninga. Ég veit ekki, hvort með því er það sagt, að fjárveitingarnar eigi við sitt augað hvor. En svo bætist við aths., sem er reyndar mjög svo falleg, að maður sá, sem til starfans er valinn, sé reglusamur og skyldurækinn við lækningastörf. Það er náttúrlega enginn að amast við því út af fyrir sig. En mér finnst dálítið einkennilegt að setja þetta skilyrði við þessar einu 1000 kr. af öllum þeim tugum og hundruðum þúsunda, sem annars eru veitt til ýmsra manna á landinu. Það mætti kannske af illviljuðum mönnum álíta, að allt hitt féð mætti borga til manna, þó að þeir væru reyndir að illu, úr því að tekið er fram sérstaklega, að maðurinn, sem hér ræðir um, þurfi að vera reglusamur og skyldurækinn. Þá liggur í augum uppi, að enga áherzlu þurfi að leggja á reglusemi og skyldurækni hjá öðrum mönnum, sem fé er á einhvern hátt veitt til í fjárl., eða bara, að í þessu sé fólgin títuprjónsstunga til ákveðinna manna. Og ég hygg, að eins og till. var borin fram í Ed. og fyrir henni var mælt þar sé þetta einungis títuprjónsstunga. Ég býst við, að sá maður, sem bar hana fram, sem nú er orðinn hæstv. dómsmrh., hafi borið þetta fram bara til þess að geta fengið tækifæri til þess að svala sinni lund og tala um sína gömlu vini, læknana, og hafi alls ekki búizt við, að þetta yrði samþ. Við vildum því ræða þetta hér í d., því við teljum ekki neitt athugavert við, að Nd. leyfi sér að breyta fjárl. og taka upp aftur fjárveitingu til kennslu í lagalæknisfræði, 500 kr., eins og áður var. Ég held, að það sé þreföld vangá í þessari einu till., þó að hún sé ekki stór.

Næsta till. er svo um það, að teknar verði upp 6000 kr. til Fiskveiðasjóðs. Ég þarf ekki að mæla með till. Menn láta í ljós hugarþel sitt til þessarar stofnunar með því, hvernig þeir greiða atkv. um þetta. Það má kannske segja það, að það sé ekki jafnsjálfsagt þetta gjald til sjóðsins eins og áður. Allt fyrirkomulag hefir breytzt. Ég álít, að ekki sé rétt að vera nú að kippa út þessum smástyrk til þessarar stofnunar, sem áreiðanlega hefir of lítið fé til þess starfs, sem sjóðnum er ætlað. Mér finnst það sýna mjög leiðinlegan hug til þessarar stofnunar að vera að seilast í þessa smáupphæð, sem getur smátt og smátt safnazt saman og orðið sjóðnum að töluverðu liði.

3. till. er um Stórstúkuna. Hv. frsm. gat þess, að það hefði verið samþ., að 1/3 af styrknum til Stórstúkunnar skuli veittur eftir fyrirmælum kennslumálaráðuneytisins til eflingar bindindisstarfsemi í skólum landsins. Það mætti alveg eins hækka styrkinn til bókmenntafélagsins upp í 20 þús., með því skilyrði, að það verði 18 þús. kr. til vegalagninga á Austfjörðum. Þetta er ákaflega leiðinlegur misgáningur, sem Alþ. ætti alls ekki að láta frá sér fara. Og ég hygg, að þessar mörgu umr., sem lög eiga að ganga í gegnum, séu m. a. til þess að hreinsa út úr lögum og frv. einmitt slíkar vitleysur sem þessa. Ef á að veita þetta til bindindisstarfseminnar og taka að sama skapi af stúkunni, þá ætt, eins og hv. frsm. sagði, að veita Stórstúkunni 6600 kr. og svo 3300 kr. til eflingar bindindisstarfsemi í skólum landsins. Ég verð að segja, að ég skil ekkert í þessari meðferð Ed., að hækka fyrst styrkinn til stúkunnar og taka svo af honum 1/3 og láta það standa á nafni Stórstúkunnar, sem ekki kemur henni við. Að ég ekki geti um það, að þeir, sem vilja, að Stórstúkan geti haldið áfram sínu starfi óhindrað, þeim þykir auðvitað illt, að stúkan verður að fella niður eitthvað af sínu starfi, úr því að styrkurinn er lækkaður. — Ég vil geta þess um þessar 3 till. allar. að þær komust inn Ed. með litlum atkvæðamun, 1–2 atkv. mun, og það mælir frekar með því, að d. haldi sínum vilja fram í þessu máli og láti þá skeika að sköpuðu um það, þar sem d. vinna á sameiginlegum vettvangi um það, hvort skuli breyta fjárl. eða ekki. Ég skal svo ekki mæla fleira með þessum till. og skal ekki fara neitt út í almennar aths. hv. frsm.

Eins og kunnugt er, erum við ekki sammála um þetta nýja form fjárl. Hv. frsm. segir, að ekki þurfi annað en að taka upp nokkrar tölur til þess að gera samanburð á fjárl. eins og þau eru og eins og þau hafa verið áður.

Þetta er náttúrlega gott og blessað fyrir mikinn reikningsmeistara, að segja, að ekki þurfi annað en að taka nokkrar tölur. Einmitt hin flóknustu stærðfræðilegu viðfangsefni eru ekki annað en að taka nokkrar tölur, en vandinn er bara, hvaða tölur á að taka. Ég leyfi mér að fullyrða það, að ef 100 þús. manns eru í landinu, þá séu mikið yfir 99000, sem alls ekki geta gert þetta nema með tilsögn, en það má sjálfsagt kenna þetta flestum. Hv. frsm. getur hlegið að þessu, en hann veit þó, að þetta vafðist fyrir n. Ég sé ekki, hvað er varið í það að leika sér að því að gera ytra form fjárl. á neinn hátt nokkuð flóknara en nauðsynlegt er. Það á að vera eins ljóst og skilmerkilegt og mögulegt er. Ríkið má hafa sína bókfærslu flókna, en það verður að hafa öll plögg, sem fara til almennings þannig, að allir geti gert sér ljósa grein fyrir því, hvernig fjárhagurinn er. Þetta er eins og með flókin vísindaleg viðfangsefni; vísindamenn geta gert þau eins flókin og þeir vilja, en ef þau eiga að koma almenningi að gagni, þá verður að setja þau þannig fram, að allir geti fylgzt með. Ég þori að fullyrða, að flestir í landinu standi eins og glópar, ef þeir ætla að gera samanburð á fjárl., og eins verður með landsreikninginn.

Við höfum ekki borið fram neina till. um breyt. á þessu formi. En það er af því í fyrsta lagi, að við viðurkennum, að þetta form sé ekki rangt, en sérstaklega vegna þess, að við töldum alveg augljóst, að við hefðum ekki till. fram að þessu sinni, og ef mönnum finnst það vera léttvæg ástæða, þá vil ég geta þess, að slík till. hefði orðið að gerbreyta öllum fjárl., ef samþ. hefði verið; það yrðu svo víðtækar breyt. Ég vil bara segja þessi orð hér, af því að hv. frsm. gaf tilefni til þess, til þess að sýna, að við hefðum ekki breytt um skoðun á þessu, þó að við hefðum ekki borið fram neina brtt. Ég skal ekki heldur fara út í það, sem hv. frsm. var að tala um, hve mikið væri ætlað til verklegra framkvæmda í fjárl. Þingið hefir verið að reyna að miðla einhverju til verklegra framkvæmda, en það er réttnefni á fjárlagafrv. eins og það kom frá stj. að kalla það sultarfjárlögin, því þar er ekki lagt neitt til verklegra framkvæmda, sem ekki hefir staðið fast í lögboðnum liðum ár eftir ár, ekkert til vegalagninga, brúa, síma eða vita. Okkar fjárl. eru að færast í það horf, að það verður annað tveggja að láta verklegar framkvæmdir vera mjög litlar, eða að ráðast verður í það að hækka skatta, þyngja skattabyrðina á landsmönnum. Nema menn vilji nema burt eitthvað af lögboðnum gjöldum.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, heldur aðeins óska þess, að d., ef hún ætlar á annað borð að samþ. fjárlagafrv., lofi því að vera með þessum breyt., sem við flytjum, hv. þm. Borgf. og ég.