21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (302)
1. mál, fjárlög 1932
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Í þeim tilmælum mínum, að allar brtt. yrðu felldar, lá ekki það, að ég væri út af fyrir sig andstæður þeim öllum eða hverri einstakri, heldur lá hitt í því, að ég vildi, að hv. d. lenti ekki í þrátefli við Ed. út af smáatriðum; því að ef við förum að breyta smáatriðum, hefir Ed. alveg sama rétt til smásmygli og við.
Það er einmitt trúin á það, að frv. verði nú samþ. án hreyt., sem hefir komið í veg fyrir fjölda brtt., enda hefir það komið fram í umr., að brtt. stöðvuðust, vegna þess að menn gerðu ráð fyrir endanlegu samþ. frv. Þetta er aðalástæðan fyrir að breyta frv. ekki nú, og það er skylt að sjá svo til, að þeim, sem hafa látið till. sínar niður falla, verði að trú sinni.
Hv. þm. hélt því fram, að ég byrjaði einkennilega mína göngu, með því að óska eftir, að fjárlagafrv. yrði samþ. óbreytt. Hann hefir þó um langt skeið stutt hiklaust fjmrh., sem óskaði sömu afgreiðslu á fjárl. ár eftir ár í þessari hv. d. eins og nú er óskað eftir. Það er ekkert einkennilegt við þá ósk mína, en það mætti segja, að einkennilegt sé, að ég setjist einmitt í þennan sess við eina umr. fjárl. í Nd.