13.08.1931
Neðri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í B-deild Alþingistíðinda. (315)
4. mál, fjáraukalög 1930
Frsm. (Þorleifur Jónsson):
Eins og hv. þdm. hafa séð af nál. því, sem hér liggur fyrir, kom fjvn. sér saman um að mæla með frv. óbreyttu til samþykktar. Ég vil samt leyfa mér að fara nokkrum orðum um ýmsa liði frv. Ætla ég þá fyrst að athuga 2. gr. Þar er veitt til aðgerðar á ráðherrabústaðnum 35 þús. kr. N. fannst þetta nokkuð hátt, þar sem fyrir fáum árum voru veittir tugir þúsunda króna til viðgerðar á þessu sama húsi. N. fékk þær upplýsingar, að þessi upphæð hefði aðallega farið til þess að láta stækka borðstofu, mála húsið utan og innan og setja steingirðingu kringum mestan part lóðarinnar. Það þarf svo sem ekki að kippa sér upp við það, þótt viðhald opinberra bygginga hér í Reykjavík sé ekki sérlega ódýrt. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Alþingi kemst að raun um það. N. vildi ekki átelja þennan kostnaðarlið. Það þurfti margt að gera slíkt fyrir hátíðarárið 1930; þá var von á fjölda erlendra gesta og leiðinlegt, að opinberar byggingar sem þessi væru ekki í sæmilegu ástandi. En n. væntir þess, að nú megi lengi una við þessa umbót á húsinu og Alþingi þurfi ekki að veita mikið fé næstu ár í þessu skyni.
Þá ætla ég að minnast nokkuð á 3. gr. frv. Það er kostnaður við tollmerkingu og söfnun innflutningsskýrslna, 33057.27 kr. Í aths. þeim, sem fylgdu frv., er ekkert minnzt á þetta atriði, en síðan n. lauk störfum, hefi ég aflað mér upplýsinga um, í hverju þessi kostnaður væri fólginn. Eftir þeim upplýsingum fer mestur hluti þessa kostnaðar í tollmerkingu tóbaks hér í Reykjavík; t. d. hefir verið greitt á árinu 1930 einu saman 25695 kr. fyrir þetta starf. Tollmerkingin fer hér fram á tollstöðinni undir eftirliti Grímúlfs Ólafssonar, og vinna að henni 3 kvenmenn og 1 karlmaður. Ég gat ekki fengið nákvæmar upplýsingar um kostnað við þessa merkingu úti um land, en hann er líklegast eitthvað nálægt 2000–3000 kr. Tollmerkingin ein mun því nema um 28 þús. kr., og er það þá langmestur hluti þeirrar upphæðar, sem færð er undir 3. lið.
Ég hygg, að þetta hafi ekki fyrr verið fært á sérstaka liði, heldur hafi verið látið heyra undir greiðslur samkv. sérstökum lögum. Í lögum nr. 48 frá 1925 eru gerðar breyt. á tollalöggjöfinni, á þá leið, að merkja skuli allar tóbakstegundir undir eftirliti lögreglustjóra eða umboðsmanns hans. Kostnaður við þessa merkingu hefir hingað til ekki verið færður sem sérstakir liðir í fjárl., en þann sið virðist sjálfsagt að taka upp, fyrst þessi upphæð er svona há.
Þá er undir sama lið færður kostnaður við söfnun innflutningsskýrslna. Það mun hafa verið árið 1925, að lögreglustjórum og sýslumönnum var boðið að safna þessum mánaðarskýrslum. Sýslumönnum mun hafa verið lofuð einhver þóknun fyrir þetta starf, og hafa þeir síðan sent reikninga til stj., suma allháa, fyrir þessum kostnaði. Stj. hefir ekki séð sér fært að greiða alla þessa reikninga að fullu; ég held, að hún hafi venjulegast greitt sýslumönnum frá 250 til 550 kr. fyrir söfnun þessara skýrslna.
Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þessa liði. Þeir eru báðir samkv. lögum, og sé ég því ekki ástæðu til þess að gera frekari aths. við þá.
Um 4. gr. er óþarft að fjölyrða. Aðalgreiðslan þar er til aðgerðar á gamla spítalanum á Kleppi, 35 þús. kr., og eftirstöðvar af byggingarkostnaði nýja spítalans á Kleppi, 7 þús. kr., og er það síðasta greiðsla.
Viðvíkjandi 5. gr. vil ég vísa til aths., sem fylgja frv. Það eru útgjöld til byggingar síma- og pósthúss á Selfossi, 30 þús. kr. Þessi bygging fór langt fram úr áætlun og hefi ég heyrt, að von muni á einhverjum reikningum í viðbót. En ekki tjáir að fást um það; húsið er nú komið upp, og ríkið verður að greiða kostnaðinn.
Þá er undir þessum lið allstór upphæð til flugfélagsins, og var hún greidd samkv. áskorun margra þingmanna.
Allstór upphæð er einnig til sjóvarnargarðs á Sauðárkróki. Þessa fjárupphæð varð að veita strax, til þess að verjast frekari skemmdum á landi en þegar voru orðnar. Sama er að segja um sjóvarnargarðinn á Siglufirði.
Viðvíkjandi 6. gr. þarf ég ekki að taka margt fram. Aðalútgjaldaliðurinn þar er til undirbúnings nýs kirkjugarðs í Rvík, og 10 þús. kr. fjárveiting til aðgerðar og breytinga á menntaskólanum í Rvík. og er þetta greiðsla fyrir það síðasta, sem þar hefir verið unnið.
Þá er þarna ferðakostnaður handa biskupi á Ólafshátíð í Þrándheimi, 1200 kr., og aðrar 1200 kr. til Jóns Ófeigssonar yfirkennara, til þess að sækja námsskeið í sambandi við heilbrigðismálasýningu í Dresden. Þetta er eins og gerist og gengur; þegar embættismenn þjóðarinnar eru boðnir á erlend mót, er ekki hægt að skorast undan því að veita einhvern styrk til þess úr ríkissjóði.
Um 7. gr. er heldur ekkert verulegt að segja. Þar er veittur nokkur viðbótarstyrkur til dr. Bjargar Þorláksdóttur, og er það vegna þess, að hún bilaðist á heilsu suður í löndum og varð þar févana. Þar er líka veitt nokkur fjárupphæð til Vilhjálms Þ. Gíslasonar fyrir aðstoð á landsbóksafninu þann tíma, sem Árni Pálsson bókavörður var á fyrirlestraferð í Ameríku, og er ekkert sérlegt við það að athuga.
Við 8. gr. eru svo greinilegar aths., að ég held, að hún þurfi tæpast skýringa við. Ég vil aðeins minnast á 3000 kr. fjárframlag til Skeiðaáveitunnar, í viðbót við þær 6000, sem veittar voru í fjárl. fyrir 1929. Kostnaður við þetta fyrirtæki verður því 9000 kr., í stað þeirra 6000 kr., sem áður var ákveðið. Varð að veita þessa viðbótarupphæð, svo að áveitan kæmi að fullum notum.
9. gr. er um greiðslu viðbótarlauna til nokkurra fráfarinna embættismanna, og er það samkv. venju, og því ekki ástæða til þess að fjölyrða um þann lið nú.
Þá kemur að 10. gr. frv., sem er aðalgrein þess. Þar er færður kostnaður við alþingishátíðina, samtals 608999,35 kr., og er það mikill hluti þeirrar upphæðar, sem fjáraukalög þessi hljóða upp á. N. sá ekki ástæðu til þess að fara nákvæmlega út í sundurliðun þessa kostnaðar, því að síðar mun gerð nákvæm grein fyrir öllum kostnaðinum við alþingishátíðina.
Þá er þar undir sama lið kostnaður vegna sænska ullarmálsins, 10000 kr. Ég hefi fengið þær upplýsingar, að mestur hluti þessa fjár hafi farið upp í greiðslu til oddamannsins í gerðardóminum, sem settur var í þessu máli, norska hæstaréttardómarans Alten. Og ég geri ráð fyrir, að einhver kostnaður við þetta mál sé enn óframkominn. en þó mun það ekki vera stór upphæð. Mér finnst, að við megum vel una við endalok þessa máls, þar sem við unnum það gersamlega og spöruðum okkur þar stór fjárútlát.
Ég hefi þá ekki meira að segja um þetta frv., aðeins vil ég geta þess, að 2 hv. nm. skrifuðu undir nál. með fyrirvara, en sami held ég, að þeir séu okkur hinum sammála í öllu, sem máli skiptir.