13.08.1931
Neðri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

4. mál, fjáraukalög 1930

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það eru ekki nema fá orð, sem ég þarf að láta falla út af ræðum hv. frsm og hv. þm. Borgf.

Ég er sammála hv. þm. Borgf. um það, að þegar um framkvæmdir er að ræða, sem vitanlegt er fyrirfram, að þurfi að koma í verk, þá eigi það að vera regla að fá það tekið upp í fjárl. Hinsvegar lít ég svo á, að langstærstu upphæðirnar í þessu frv. falli ekki hér undir. Stærstu upphæðirnar eru vegna alþingishátíðarinnar. Alþingi skipaði sérstaka nefnd til þess að annast ráðstafanir vegna hennar, og auðvitað hlutu stórar upphæðir að fara til þess.

Af einstökum liðum nefndi hv. þm. réttilega 5. gr., póst- og símahús á Selfossi, og ég er honum sammála um, að það hefði átt að vera búið að koma til þingsins og fá sérstaka fjárveitingu í þessu skyni. En stj. áleit, að ekki yrði hjá því komizt að taka þá ákvörðun að flytja póstafgreiðsluna að Ölfusá, því að þar var orðin miðstöð héraðsins. Það var gert alllöngu áður en stofnað var til þess að koma þessu húsi upp, og þá var náð samkomulagi við hið nýreista Flóabú um að koma póstinum þar fyrir. En svo breyttist aðstaðan, þannig að ekki var lengur hægt að koma honum þar fyrir. Helzt hefði þá verið um að ræða að fá húsnæði í Tryggvaskála, en að öllu athuguðu þótti það ekki heppilegt; og þegar við vorum reknir út með póstinn, var ekki annað að gera en að sjá póstinum og símanum fyrir húsrúmi á þann hátt, sem gert var. En það fór því miður um þetta hús eins og svo margt annað, sem áætlanir hafa legið fyrir um, að þegar ákvörðunin var tekin að reisa þarna hús, var rætt um miklu lægri upphæð heldur en síðar kom á daginn, að húsið kostaði.

Þessa skýringu vildi ég láta koma fram. Það voru þessar sérstöku ástæður, sem ollu því, að ekki var hægt að leita til þingsins áður.

Það er rétt hjá hv. frsm. og hv. þm. Borgf., að það er ekki skemmtilegt að fá svona háar upphæðir um aðgerð á ráðherrabústaðnum, svo stuttu eftir að hann hefir fengið viðgerð. Húsameistara ríkisins var falið að koma húsinu í lag, og megnið af þessum kostnaði féll til, meðan ég var fjarverandi. En ég vildi geta þess, að orðalagið á liðnum er ekki tæmandi. Það var ekki aðeins um að ræða stækkun á borðstofu, málningu o. s. frv., heldur líka steingirðingu á tvo vegu, sem stafaði af því, að nágranninn reisti myndarlegt hús og steinvegg, sem ríkið varð að taka þátt í, og svo var einnig girt á aðra hlið. En í þessu er líka innifalið ýmislegt, sem nauðsynlegt var að kaupa til hússins og fylgir bústaðnum áfram, svo sem borðbúnaður og húsgögn.

Hv. þm. Borgf. gerði sérstaklega að umtalsefni tvo liði í 6. gr. Um viðbótarstyrk til Finnboga R. Valdimarssonar vil ég geta þess, að það var gert samkv. till. utanríkismálanefndar. Við þurfum að eignast menn, sem viðbúnir séu á sínum tíma til þess að takast á hendur hin auknu störf, þegar við tökum utanríkismálin í okkar hendur.

Spaugsyrði hv. þm. út af styrknum til Jóns Ófeigssonar sé ég enga ástæðu til þess að fara út í.