17.07.1931
Neðri deild: 3. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

1. mál, fjárlög 1932

Ásgeir Ásgeirsson:

Vegna þess, að drepið hefir verið á útvarp í sambandi við þessar umr., vil ég benda á það, að samkv. reglum um útvarp frá Alþingi er gert ráð fyrir nýjum umr. við útvörpun „eldhúsdagsins“, og verða því þessar umr., sem hér hafa farið fram í dag, að skoðast sem aukalegar.