21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (362)
2. mál, fjáraukalög 1929
Jón Baldvinsson: Mér var kunnugt um skilning hæstv. forseta á þessu ákvæði þingskapanna, síðan hann felldi úrskurð sinn um atkvgr. í ljósmæðramálinu, og ég held, að sá úrskurður sligist ekki undir hv. 1. landsk. Annars skal ég segja það, að ég álít úrskurð, sem felldur var í Nd. við svipaða atkvgr., ekki réttan. Þar var málið talið samþ. með 14:13 atkv., þótt einn þm. hefði lýst því yfir, að hann greiddi ekki atkv., og ekki komu fram sömu forsendur sem nú í þessari deild.