22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (366)
2. mál, fjáraukalög 1929
Forseti (GÓ):
Ég ætla, hv. 1. þm. Reykv. til skýringar, að lesa upp 4. mgr. 44. gr. þingskapa. Hún hljóðar svo:
„Nú er haft nafnakall við atkvæðagreiðslu og þingmaður greiðir eigi atkvæði, og skal hann þá leiða rök að því. Forseti sker úr, hvort þau rök skuli gild talin, en þingmaður getur skotið þeim úrskurði undir atkvæði deildarinnar eða þingsins“.
Ég lít svo á, að þessi þm., sem hér er nefndur, sé sá þm., sem um er deilt, en ekki hv. 1. þm. Reykv., og álít því að ekki þurfi að taka kröfu hans til greina.