22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

2. mál, fjáraukalög 1929

Jakob Möller:

Ég gat búizt við ýmsum tiltektum af hæstv. forseta, ekki af því, hvernig hann er sjálfur gerður, heldur vegna þeirrar neyðar, sem flokkur hæstv. forseta er í. En ég hefði ekki trúað því, að hæstv. forseti léti sér detta í hug að úrskurða, að það væri aðeins sá þm., sem neitar að greiða atkv., sem hér væri átt við, því það er eini þm. í deildinni, sem víst er, að aldrei gerir kröfu til þess, að það sé borið undir deildina, hvort úrskurður forseta sé réttur. Það liggur og í augum uppi, að ef það væri þessi þm. einn, sem rétt hefði til þess að krefjast þess, væri það skýrt fram tekið, að „þingmaðurinn“ gæti krafizt þess. En í þessari mgr. er aðeins „þingmaður“, og á það að sjálfsögðu við hvern þm. sem er. Þetta er tvímælalaus skýring á þessu ákvæði. Hæstv. forseti getur því sleppt þessum krókaleiðum. Hann ætti heldur að neita því skýringarlaust að bera þetta undir deildina heldur en að bera þessu við. Það liggur í hlutarins eðli, að þm., sem um er deilt, hvort atkvæðisbær sé eða ekki, hefir allra þm. minnst um það að segja. Ég held því fast við þá kröfu mína, að hæstv. forseti skjóti þessu undir deildina, og tel hann hafa brotið þingsköpin ella.