25.07.1931
Neðri deild: 12. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

1. mál, fjárlög 1932

Magnús Guðmundsson:

Það hefir orðið að samkomulagi milli Sjálfstæðisflokksins og hæstv. stj. að fresta eldhúsdagsumr. til 3. umr., þannig að við þá umr. hafi flokkurinn fullan rétt til þeirra umræðna. Með tilliti til þess skal ég ekki fara fleiri orðum um þetta mál nú, en þó vil ég geta þess, að ég hafði búizt við, að hv. frsm. fjvn. myndi gefa dálitla skýringu viðvíkjandi hag ríkissjóðs. En ég vil þá vona, að hann geri það í byrjun ræðu sinnar við 2. umr.