22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (370)
2. mál, fjáraukalög 1929
Pétur Magnússon:
Ég vil alls ekki fara fram á það við hæstv. forseta, að hann hagi úrskurði sínum hér í deildinni þannig, að það komi í bág við hagsmuni hans eigin flokks. En hins vil ég óska, að hann meti þessa deild svo mikils, að hann felli ekki úrskurð, sem komi í bág við heilbrigða skynsemi og feli það álit í sér, að það gildi ekki meir en eins dags kaupmissi að greiða atkv. móti betri vitund. Slíkt tel ég móðgun við þessa hv. deild. Ég hefi enga tilhneigingu til þess að gremja hæstv. forseta, en þessum úrskurði verð ég fyrir hönd flokks míns að mótmæla.