22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (371)

2. mál, fjáraukalög 1929

Forseti (GÓ):

Ég held, að hv. 4. landsk. sé ekki ljóst, hvað hann er að segja, þótt hann sé lögfróður. Hér er ekki um það að ræða, hvort hv. 2. landsk. eigi að missa kaup sitt eða ekki. Hv. þm. gerði grein fyrir því, hvers vegna hann greiddi ekki atkv., og ég tók þær ástæður gildar.