07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í B-deild Alþingistíðinda. (390)

3. mál, landsreikningar 1929

Magnús Guðmundsson:

Hæstv. forsrh. hefir dálítið misskilið það, sem ég sagði um lánveitingar úr viðlagasjóði. Ég nefndi ekki, hvort lánveitingarnar hefðu verið réttmætar eða ekki. Mér er kunnugt um, að þær voru margar réttmætar, en sumar voru líka óréttmætar. Það voru ekki lánveitingarnar, sem ég var að ávíta, heldur hitt, að telja, að þessar upphæðir væru í sjóði ríkisins. Það er röng reikningsfærsla, sem ekki má láta viðgangast. Ég hefi ekkert á móti því, að þetta fé sé lánað til 8 ára, en það má ekki færa það sem það sé í handraðanum hjá ríkissjóði. Það verða allir menn að játa, að slík reikningsfærsla er óhafandi.

Hæstv. ráðh. sagði, að það stæði upp á ríkið að veita peningum til Búnaðarbankans. Þetta er víst rétt, og það gefur tækifæri til þess að spyrja, hvort ríkissjóður hefir greitt Búnaðarbankanum þær 1 millj. 300 þús. kr., sem samkvæmt skýrslu fjmrh. á síðasta þingi stóðu inni í ríkissjóði til ráðstöfunar þaðan, eftir því sem þar segir. Mér hefir skilizt, að þessi upphæð hafi átt að fara til Búnaðarbankans, og þar sem það er kunnugt, að hann er mjög peningalítill nú, væri æskilegt, að hann fengi þessa upphæð, ef hann er ekki þegar búinn að fá hana.

Ég vildi gjarnan heyra, hvað hæstv. ráðh. segir um þessa upphæð, hvort hún liggur enn ónotuð í ríkissjóði, sem ég býst þó ekki við, þar sem ríkissjóður hefir orðið að taka bráðabirgðalán til daglegra greiðslna, eða hann hefir þegar borgað Búnaðarbankanum hana.

Þá er eftirlitið með verksmiðjum og vélum. Hæstv. forsrh. sagði, að öll hin greidda upphæð mundi endurgreiðast ríkissjóði. Reynslan sýnir þetta, en það verður ekki skafið út, að í lögunum um eftirlit með verksmiðjum og vélum stendur berum orðum, að skoðunarmenn eigi að fá borgun hjá þeim, sem þeir skoða vélar hjá, og þá samkv. gjaldskrá, en ekki hafa föst mánaðarlaun, eins og hæstv. ráðh. hefir látið þá fá.