10.08.1931
Neðri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (394)

3. mál, landsreikningar 1929

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég var bundinn við fjárlagaumr. í Ed. og gat því ekki komið fyrr en mér bárust þau boð, að hv. þm. N.-Ísf. hefði látið þau orð falla í minn garð, sem ég gæti ekki látið ómótmælt.

Hv. þm. gerði það að umtalsefni, hverjum ég hefði veitt starfann við eftirlit með verksmiðjum og vélum. Mér finnst það dálítið undarlegt að koma með slíkar aðfinningar nú, svo löngu eftir að þetta hefir gerzt. Ég hygg, að liðin séu 3 eða 4 þing síðan þessir menn voru skipaðir, og það er undarlegt af hv. þm., ef hann meinar nokkurn skapaðan hlut með því, sem hann segir, að hann skuli hafa legið á þessu ár eftir ár. Þetta ber ekki vott um, að það sé mikið tilefni til þess, sem hv. þm. segir. Hv. þm. meinar auðsjáanlega ekkert með því, sem hann segir. Hann vitnar á orð fjarstadds manns. Á slíku er ekkert mark takandi.

Um skipun þessara manna er það að segja, að þegar átti að skipa þá, var ekki nema einn maður til hér á landi með sérnámi í þessu efni. Það var sótzt eftir að fá þennan mann til starfans, og fékkst hann til þess. Hinn maðurinn, sem tekinn var, sá, sem hv. þm. N.-Ísf. áfellir mig nú fyrir að skipa, er sá maður, sem af öllum innlendum mönnum hafði lengsta reynslu í verksmiðjurekstri. Var hann lengi fyrir verksmiðju á Ísafirði, sem studd var af ríkinu. — Annar þessara manna er skyldur fjölskyldu minni — mér er hann ekki skyldur —; þess tilefnis vegna leyfir þessi hv. þm. sér að hafa eftir honum þau orð, að þetta sé borgun fyrir fjármálalegan velgerning. Ég skora á hv. þm. að segja þetta utan deildar. (JAJ: Ég skal endurtaka það utan deildar, svo hæstv. ráðh. geti stefnt mér til ábyrgðar). Ég ætla ekki að stefna þessum hv. þm. Ég hefi gert mér það að reglu að stefna aldrei og mér dettur ekki í hug að taka slíkar aðdróttanir alvarlega. Það er engin ástæða fyrir mig til þess. Það eru orð annars manns en mín, sem hv. þm. er að fara með. Það er þess manns vegna, sem ég skora á hv. þm. að endurtaka orðin utan deildar, og hann er maður að minni, ef hann gerir það ekki. Ég held, að hv. þm. hafi talað þetta af því að ég var ekki viðstaddur, og ég vona, að hann sjái að sér, þegar um slíka hluti sem þessa er að ræða.