10.08.1931
Neðri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

3. mál, landsreikningar 1929

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Sökum þess að hv. 2. þm. Skagf. flytur hér brtt. á þskj. 179, vil ég spyrja hann að því, hvort hann teldi rétt, að umrædd upphæð sé færð á rekstrarreikning ríkissjóðs eða sjóðsreikning sem einn liður til útgjalda. Ég vonast eftir, að hv. þm. geti svarað þessu úr sæti sínu. (MG: Ég fæ orðið á eftir). Úr því að hv. þm. vill ekki svara þessu, vil ég segja honum það, að ekki kemur til mála að færa þessar upphæðir á rekstrarreikning ríkisins, af þeirri einföldu ástæðu, að þessar framkvæmdir voru gerðar fyrir lánsfé og var heimild til þeirra lántaka í sérstökum lögum eða fjárlögum. Síldarbræðslustöðin er t. d. byggð samkv. 1. nr. 49, 7. maí 1928, og er þar heimiluð lántaka til hennar. Þingvallavegurinn er lagður samkv. heimild í fjárl. 1929 og er þar heimiluð lántaka til þessa verks. En þessi heimild var ekki notuð, þegar til kom, og kostnaðurinn settur á rekstrarreikninginn fyrir árið 1930.

Arnarhváll er byggður samkv. heimild í fjárl. 1930, og er þar heimild til lántöku. Landsspítalinn er byggður samkv. l. nr. 74, 28. nóv. 1919, og er í þeim lögum heimild til lántöku. Með þáltill. á þskj. 575 1927 var svo hert á stj. að framkvæma þetta verk. Af þessu er auðséð, að þingið hefir ætlazt til þess, að þessar framkvæmdir væru gerðar fyrir lánsfé, og því eru þessar upphæðir ekki færðar á rekstrarreikninginn 1929. En þetta væri ómögulegt að færa til gjalda á sjóðsreikningi, og skal ég játa, að það er ef til vill réttast að færa niðurstöðuna á sjóðsreikning ríkissjóðs. Þetta var greiðsla, sem fyrirsjáanlegt var, að ríkissjóður fékk inn einum mánuði eftir að LR. voru undirskrifaðir. Þetta var því aðeins bráðabirgðalán, fé, sem ríkissjóður átti útistandandi og gat gripið til á næstunni og átti því, ef það væri fært í gegnum sjóðinn, frekast að heyra undir aukna innstæðu. En þessi aukna innstæða er á eignaskýrslum ríkisins einmitt talin peningar í sjóði. Það ber því að sama brunni, að hvorttveggja er talið á sjóðsreikningi. Munurinn er aðeins sá, að innstæðan á sjóðsreikningi hefði orðið önnur, en næsta tala leiðrétt það, svo niðurstaðan hefði orðið sú sama á eignaskýrslunni sjálfri. Hefði þetta verið gert, hefði breytingin 1930 orðið sú, að innstæðan hefði minnkað sem þessari upphæð nam, en sjóðsreikningurinn sjálfur vaxið að sama skapi. Þetta eru öll áhrifin, sem þessi færsla hefir á reikningana árin 1929 og 1930. (JJós: Það er þá ekki allt gull sem glóir í landsreikningnum. Aukni sjóðurinn er þá ekki til ). Aukni sjóðurinn er til sem peningar í sjóði, innstæða eða á hlaupareikningi í banka, peningar, sem koma skömmu eftir að LR. er lokað. Ég býst við, að hv. þdm. geri ekki mun á því, hvort peningar eru í kassanum eða í banka, eða eru hjá stofnun, sem kemur einum mánuði eftir að reikningnum er lokað. (MG: Hv. þm. er að svara allt öðru). Þetta eru borgaðir reikningar, sem ætlazt er til, að greiðist af lánum, sem vissa er fyrir að fáist.

Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að endurskoðendurnir hefðu verið sammála um að víta hlutdrægni í notkun ríkisfjár. Á þessu vil ég gefa nokkra skýringu.

Þegar hv. 2. þm. Skagf. skrifaði þessa till., færðist ég nokkuð undan því að skrifa undir hana og vildi fá skýringu á, hver væri meiningin með þessu orðalagi. Það, sem hann gaf upp, og ég býst við, að hann standi við, var, að hann teldi það hlutdrægni í notkun ríkisfjár að birta undirréttardóm í máli á kostnað ríkissjóðs í opinberu blaði, en birta ekki líka hæstaréttardóminn.

Ég hefi ekki meira um þetta atriði að segja. Mér finnst mjög hæpið, að rétt sé að samþ. hana samkv. þeim rökum, sem hv. flm. hefir fært fyrir henni.

Allar þær upplýsingar, sem hv. þm. N.-Ísf. gaf, voru firrur og fjarstæður, og virðist svo sem hann hafi lítið vit á bókfærslu og reikningshaldi, þótt hann hafi haft slíkt með höndum.