10.08.1931
Neðri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (399)

3. mál, landsreikningar 1929

Magnús Guðmundsson:

Ég verð að svara hv. frsm. nokkrum orðum viðvíkjandi brtt. minni. Hann sagði, að ekki væri ástæða til að færa þessa umræddu 1 millj. kr. á landsreikninginn 1929, því að hér væri um sjálfstæðar stofnanir að ræða og reikningar fyrir þær væru ekki fullgerðir. Mér finnst landsspítalinn ekkert sjálfstæðari en hver önnur opinber stofnun, og það verður að færast á hvert ár, sem greitt er til hverrar stofnunar fyrir sig. Annars er reikningsfærslan röng og villandi. Hann sagði, að þetta. hefði áður verið algeng venja. En það er ekki rétt. Það hefir aldrei fyrri verið um svipað því svona stórar upphæðir að ræða. Smærri upphæðir hafa áður verið færðar milli ára, og það hefir einnig verið gert nú, en ég tók aðeins fyrir stóru upphæðirnar. Hinar minni lét ég liggja, til þess að ekki liti út fyrir, að ég væri að fara í lúsaleit. Þessar minni upphæðir, sem ég hefi sleppt, nema mörgum tugum þúsund. Ég vil sem sé láta það koma skýrt fram, að ég flyt mína brtt. til þess að rétt mynd komi fram af fjárhagnum, en rétt getur hún ekki orðið, þegar skakkar millj. eða meira frá því, sem LR. segir. Þegar svona skekkja er, þá er það eitthvað annað en flutningur milli ára, sem nemur fáum tugum þúsunda. N. sjálf gerir till. um það, að það eigi að færa allar greiðslur á þau ár, sem þær eiga við. Það er alveg í samræmi við till. mína, og er því merkilegt, að meiri hl. n. skuli ekki vilja samþ. mína till.

Eftir því yfirliti yfir tekjur og gjöld ríkissjóðs á árinu 1930, sem hæstv. stj. gaf á síðasta þingi, var auðsætt, að stj. hefir hugsað sér að flytja ½ millj. kr. af gjöldum ársins 1930 yfir á árið 1931. En þegar þetta komst upp, þótti það óhæfilegt og var hætt við þetta. Að þessu athuguðu kemur það undarlega fyrir, að stj. og hennar fylgifiskar vilja nú láta það viðgangast, að yfir 1 millj. kr. sé á þennan hátt flutt milli áranna 1929 og 1930. Í þessu er ekkert samræmi. Það þarf enga illgirni til að geta þess til, að þetta sé gert til að láta líta svo út, að ekki hafi orðið rekstrarhalli á ríkisbúskapnum 1929. En ef allar þessar stóru upphæðir eru teknar með, þá kemur í ljós, að það er tekjuhalli 1929. Það var upplýst af fjmrh. á þinginu 1930, að tekjuafgangur 1929 væri 1700 þús. kr., en þegar reikningurinn er rétt gerður upp, þá sýnir sig, að það er tekjuhalli. en ekki tekjuafgangur. Þetta er náttúrlega ekki skemmtilegt fyrir stj. Hún hefir gefið þinginu ranga skýrslu. Hv. frsm. sagði, að hér væri um formsatriði að ræða, allir vissu, hvernig þetta væri. Það er rétt, allir vita þetta. En ég skoða það meira en formsatriði, að segja tekjuafgang 1700 þús. kr., þegar ekki er um neinn tekjuafgang að ræða. Ég vil ekki segja ósatt um það.

Þá gerði hv. þm. V.-Húnv. fyrirspurn til mín. Hann spurði, hvort ég liti svo á, að þessi umdeilda milljón Ætti að færast á rekstrar- eða sjóðsreikning. Ég skil ekki, hvers vegna hann spyr. Það er hvorki rekstrar- né sjóðsreikningur, sem hér er verið að samþykkja, heldur reikningur um inn- og útborganir ríkissjóðs. Og þá held ég því fram, að þessar upphæðir eigi að vera með, og varðar ekki um í þessu sambandi, hvort þær eiga að vera á rekstrar- eða sjóðsreikningi.

Hann gerði mikið úr því, að lánsheimild væri fyrir þessum framkvæmdum. En í þessu sambandi skiptir það engu máli.

Engin lánsheimild heimilar að skrökva til um, hvað sé í sjóði, ekki sízt þar sem um er að ræða á 2. millj. kr. Af hverju má ekki segja eins og er? Og ef það má fara að á þennan hátt, þá er alltaf hægt að sýna tekjuafgang. Það getur aldrei orðið svo mikill tekjuhalli, að ekki sé hægt að hylja hann með þessari aðferð.

En ég verð að endurtaka það, að það er ekki nokkur meining að fara í smálúsaleit um þetta. Ég er búinn að sýna, að það eru sjálfsagt einar 50–60 þús. kr., sem ég hefi alls ekki tekið með hér, því að mér fannst það ekki upphæð, sem skipti neinu um heildarniðurstöðu landsreikningsins. En upphæð, sem er á 2. millj., skiptir sannarlega miklu máli um niðurstöðu ríkisbúskaparins; við erum nú ekki stærri en það. Hv. þm. sagði það vera sama, hvort peningar væru í sjóði eða í banka og kæmu í sjóð í næsta mánuði. Þetta veit ég vel, en það er allt annað að telja í sjóði stórfé í greiddum reikningum. Það sér hver einasti maður, að er gersamlega óskylt.

Þá skal ég víkja að aths. út af birtingu á dómi í bæjarfógetamálinu. Það er rétt, sem hv. þm. V.-Hún. sagði, að þessi ummæli eiga einmitt sérstaklega við það, að ekki var birtur dómur í blaðinu bæði frá undirrétti og hæstarétti. Þar í liggur hlutdrægnin. Auk þess álít ég, að það eigi alls ekki að þurfa að kaupa stjórnmálablað til að gefa slíkt út. En það er aukaatriði. Hitt er aðalatriðið, og um það var hv. þm. V.-Húnv. mér sammála; og mér er ánægja að heyra hann skýra alveg rétt frá samtali okkar.

Ég man ekki, hvort ég tók fram, að ég bar þessa brtt., sem ég ber fram, undir þann flokksmann minn, sem er í fjhn., hv. þm. G.-K., og hann er henni algerlega samþykkur.

Þá var það hv. 2. þm. Reykv., sem virtist talsvert óánægður við okkur yfirskoðunarmenn fyrir það, að við hefðum sumstaðar gert aths. út af litlum hlutum, sem ekki væru verðir þess að minnast á, en sumpart sleppt að gera aths. við þýðingarmikla liði. Ég get gjarnan viðurkennt, að oft er álitamál, hvað gera skal aths. um, og verður jafnan að ráða mat yfirskoðunarmanna og stundum samkomulag þeirra milli. En ég vil benda hv. þm. á, að það er ekki undarlegt, þótt yfirskoðunarmenn spyrji: Hvers vegna á ríkissjóður að borga eldsneyti handa presti úti á landi? Þarna er vitanlegt, að um óréttmæta upphæð er að ræða. Svipað má segja um róðrarbátana. Yfirskoðunarmenn hafa ekki tekið neina afstöðu til þess, hvort yfirleitt sé rétt að styrkja róðrarbátakaup. En það lítur nokkuð undarlega út, þegar maður sér í reikningum ríkissjóðs, að stj. hefir keypt róðrarbáta, og maður veit ekkert, til hvers þeir hafa verið notaðir.

Það var held ég byggt á misskilningi, sem hv. þm. sagði um kostnað af konungskomunni 1926. (EA: Var refjast um að borga þetta?). Það veit ég ekki. Sýslum. á Akureyri hefir gleymt eða trassað að senda reikninginn svona lengi.

Hv. þm. talaði um kostnað landhelgisjóðs af bílum og hestum. Það var bent á af yfirskoðunarmönnum, hve mikill kostnaður af þessu væri; en þess ber að gæta, að búið er að gera aths. um þetta í mörg ár, og þingið hefir aldrei viljað gera neitt út af þessu.

Út af fálkaorðunni er því að svara hv. þm., að meðan þessari orðu er haldið uppi að lögum, þá er ómögulegt að gera það kostnaðarlaust. Og það þýðir ekkert fyrir neinn hv. þm. að standa upp og segja: Ég er á móti orðunni og við skulum neita stj. um peninga til hennar. Sá þm., sem ekki vill hafa orðuna, á þá að koma með þinglega till. um að afnema hana. Annars gæti ég trúað, að kostnaður vegna orðunnar hafi 1930 orðið ekki lítið meiri en venjulega, ef ég hefi litið rétt á það stórkostlega krossaregn, sem átti sér stað það ár.

Þá held ég, að hv. þm. hafi nefnt 18. aths., kostnaðinn við prentun á útdrætti úr nokkrum málum. Þeirri aths. var svarað þannig: „Hér er um að ræða prentun á mörgum þýðingarmiklum skjölum, sem innan skamms munu koma fyrir almenningssjónir“. Svo er þingið rofið þ. 14. apríl. Við skrifuðum okkar till. 4. apríl. Ég verð að segja, að mér fannst ekki liðið svo langt frá því að hæstv. stj. svaraði, frá 14. marz til 4. apríl, að ástæða væri að undrast um skjölin. Þess vegna hljóðaði till. til úrskurðar þannig, að svarið væri ófullnægjandi, og því ekki unnt að gera till. til úrskurðar. Ég sé ekki, hvað við gátum annað gert. Við ætluðum að bíða þangað til ritið kom. Og það er ókomið enn; og ég hefi orð hæstv. forsrh. fyrir því, að það muni aldrei koma, svo að nú er hægt að gera þær till. út af þessu, sem hver vill.