11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

3. mál, landsreikningar 1929

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Það er rétt hjá hv. frsm. n., að ég mun ekki hafa sagt neitt um það í n., að ég myndi greiða atkv. á móti LR., ef brtt. hv. 2. þm. Skagf. yrði felld. Það má vera, að hin raunverulega ástæðu til þess, að ekki var rætt um þetta í n., hafi verið sú, að okkur hv. 2. þm. Skagf. var það ljóst, að það skipti í rauninni engu máli, hvort við greiddum atkv. á móti frv. eða ekki; það yrði samt sem áður samþ. hér í hv. d.

En mér þykir rétt að láta hv. frsm. vita það, áður en gengið er til atkv., að vegna þess að ég tel það ósæmilegt af ríkisstj. að hafast það að, sem myndi vera bein tugthússök, ef einstaklingur ætti í hlut, þá mun ég greiða atkv. móti LR. í þetta sinn.

Ég get ekki fallizt á, að það skipti engu máli, hvort um stórar eða smáar upphæðir er að ræða í þessum efnum. Þó að slík færsla hafi átt sér stað í smáum mæli áður, þá réttlætir það alls ekki hæstv. núv. ríkisstj., sem hefir framkvæmt slíkar færslur í stórum stíl. Það getur auðvitað komið fyrir, að skakkar færslur séu gerðar óafvitandi, ef um smáar upphæðir er að ræða. En ég get ekki séð annað en að hæstv. núv. ríkisstj. hafi gert þetta vísvitandi, til þess að láta það líta svo út fyrir augum landsmanna, að fullt samræmi sé á milli afkomu ársins 1929, landsreikningsins og bráðabirgðayfirlitsins 1930. Sé það of sterkt að orði kveðið, að hér sé um sviksamlegt framferði að ræða, þá er hér a. m. k. að ræða um óviðfelldið atferli, sem þarf að kippa í liðinn svo fljótt sem unnt er.

Hv. frsm. sagði, að það skipti engu máli, hvort hér væri um smáar eða stórar upphæðir að ræða. Mér finnst, að hann ætti þá að vilja, að samræmi verði milli nútíðar og framtíðar í þessum efnum. En hann hefir sjálfur borið fram till. um að kippa þessu í lag á landsreikningunum framvegis. Með því að vita þannig, að þetta komi fyrir í framtíðinni, þá vítir hv. frsm. einnig fortíðina hvað þetta snertir.

Þá vil ég leyfa mér að skora á hæstv. forsrh. og fjmrh. að gera grein fyrir því, hvernig á því stendur, að varið hefir verið fjárupphæð úr ríkissjóði, allt að 10 þús. kr., til þess að prenta ýms gögn, sem síðar hefir verið lýst yfir, að ættu ekki að koma fyrir almenningssjónir. Og ég vildi fá að heyra það af vörum hæstv. ráðh., hvort hann standi ennþá við það að láta plögg þessi ekki koma út. Þessi plögg, sem ég á hér við, er „Bláa bókin“ svonefnda, sem flestir munu kannast við. Þegar hæstv. forsrh. lýsti yfir því í vor í viðurvist formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns Alþýðuflokksins, að stj. skoðaði sig sem bráðabirgðastj., og lofaði því jafnframt, að hún skyldi ekki misnota ríkisvaldið fram yfir kosningar, þá mun hann hafa talið það upp í nokkrum liðum, hvað hann ætlaði að gera og hvað hann ætlaði að láta niður falla. Meðal þess, sem ógert átti að vera, var það að gefa út þetta rit, „Bláu bókina“, sem kostað hafði verið til 10 þús. kr. úr ríkissjóði.

Nú vildi ég spyrja hæstv. forsrh. um það, að ef það verður hans hlutskipti að mynda væntanlega ábyrga, pólitíska stjórn, hvort hann ætli þá að sjá um, að þetta loforð, sem hann gaf um það, að ritið skyldi aldrei koma fyrir almenningssjónir, verði haldið, eða hvort hann ætli að lofa öðrum manni, sér verri, að rjúfa það, sem hann hefir lofað. Ég heyrði það í hv. Ed. fyrir skömmu, að maður einn lét alldólgslega og hótaði því, að þessi plögg skyldu bráðlega verða send inn á hvert heimili á landinu. Ég vil spyrja hæstv. forsrh., hvort hér eigi svo að fara sem máltækið segir, að dómsmrh. svíki það, sem forsrh. lofar.