11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

3. mál, landsreikningar 1929

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Ágreiningurinn milli mín og hv. 2. þm. Skagf. er svo ræddur og ljós orðinn, að ég fellst á það, að það er þýðingarlaust að deila um hann meira, og læt ég því umr. um það niður falla.

Hv. þm. Seyðf. sagði, að hann og flokksmenn hans myndu greiða atkv. á móti samþ. landsreikninganna, vegna þess að fjárlögin hafi verið brotin. Þeir eru vitanlega sjálfráðir um það. En á það vil ég benda, að þá taka þeir upp alveg nýjan hátt, því að það hefir jafnan svo verið á hverjum landsreikningi, að hann hefir verið hærri en áætlað hefir verið. Auk þess er nú hér í deildinni búið að samþykkja fjáraukalög fyrir 1929, og þar með heimild fyrir öllu því fé, sem í þessum landsreikningi stendur. Að greiða atkv. á móti samþykkt landsreikninganna er því að ganga í berhögg við sjálfan sig, og á það bæði við hv. þm. Seyðf. og hv. þm. G.-K. Ef það er talið lagabrot og geti varðað tugthússök að flytja upphæðir milli ára, þá hefir sú sama sök legið fyrir á þingum áður, og hvílir á öllum, sem setið hafa á undanförnum þingum. Það væri því laglegur hópur, sem færi í tugthúsið, ef allir fylgjast þar að, sem eiga hér skilið mál. Myndi hv. þm. G.-K. prýða þann hóp.

Þar sem hv. þm. G.-K. talaði um samræmi milli fortíðar og framtíðar, þá vil ég benda honum á það, að á umliðnum tíma hafa landsreikningarnir verið samþ., þótt umframgreiðslur hafi verið, og þær upphæðir allar samþ., ýmist undan eða eftir. Til þess að halda samræminu ber því að samþ. LR. óbreyttan nú.

Mér skildist, að hv. 2. þm. Reykv. tæki það ekki vel upp, er ég benti á, að hann væri að halda sér fram yfir hv. 2. þm. Skagf. til að endurskoða landsreikningana. Rann út í fyrir honum, svo að hann fór að tala um framkomu mína í málum, sem hér liggja ekki fyrir. Hv. þm. kann ekki gott að þiggja. En dóma hans um þau mál, sem ég hefi flutt á þingi, tel ég mig hafa, á þessu stigi, fullan rétt til að kalla ómerka sleggjudóma.