11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (412)
3. mál, landsreikningar 1929
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Ég má sætta mig við, að fjármálaspekingur Framsóknarflokksins líti niður á kunnáttu mína í bókfærslu. Maður sér það á honum, hvílíkur spekingur hann er, á öllum hreyfingum hans, — já, þótt ekki sé annað en hvernig hann stendur upp, sýnir hvílíkur fjármálaspekingur hann er. En það vil ég segja hv. þm., að jafnvel þótt ég í n. hefði bundið mig við að samþ. landsreikningana, ef till. hv. 2. þm. Skagf. næði samþykki, þá hefir smáræða sú, er hæstv. forsrh. flutti hér áðan, algerlega leyst mig frá því loforði. Hann viðurkennir að lagðar hafi verið fram 10 þús. kr. til að gefa út auvirðilegt níðrit, — svo lítilmótlegt, að hann lofaði, að það skyldi aldrei koma fyrir almenningssjónir, þótt búið væri að kosta útgáfuna.
Nú segir hæstv. ráðh. í dag, að þetta loforð hafi verið gefið í sambandi við kosningarnar. Á nú að gera annað miklu verra en þótt peningunum væri kastað í sjóinn? Því að svo vont sem það er að taka 10 þús. og brenna þeim, þá er hitt þá hálfu verra, að senda þetta svívirðilega rit út til þjóðarinnar. En ég skil á mæli ráðh., að hann er að komast niður í buxnavasa fyrrv. dómsmrh., þar sem hann hefir áður verið. Ég vildi heyra hann verja það, að rit þetta væri ekki hæft til að koma út fyrir kosningarnar, en væri hæft til þess, þegar þær eru afstaðnar. — Þótt ekki væri annað en að heyra hæstv. ráðh. mæla þannig, þá er það nóg til að leysa mig frá loforði um að samþykkja landsreikningana.