11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
3. mál, landsreikningar 1929
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Hv. 2. þm. Skagf. mælti í gær, að það skipti ekki máli, hvort hin umrædda upphæð stæði á rekstrarreikningi eða sjóðsreikningi. Út frá því, sem hv. þm. G.-K. sagði, þá skiptir það ekki litlu máli. Hann hélt því fram, að þessi yfirfærsla væri gerð í þeim tilgangi, að landsreikningarnir væru í meira samræmi við skýrslu þá, sem fjmrh. gaf í vetur. En nú vil ég benda hv. þm. G.-K. á það, að skýrsla hæstv. fjmrh. er byggð á rekstrarreikningi. Ef þessi upphæð er því tekin inn á sjóðsreikning, þá hefir það engin áhrif á útkomu LR. við skýrslu fjmrh. Það er ekki lítilfjörlegt atriði, hvort það er á sjóðsreikningi eða rekstrarreikningi. Því að ef það er á sjóðsreikningi, þá vil ég spyrja hv. 2. þm. Skagf., hvernig ætti að færa það á landsreikningi 1930?
Ég sé ekki, að það geti komið til mála að gera þær breyt. á LR., sem hv. 2. þm. Skagf. fer fram á, fyrr en hann hefir skýrt, hvernig hann ætlist til, að það sé fært á landsreikninginn, hvort heldur á rekstrarreikning eða sjóðsreikning. Þess vegna er ekki ástæða til að samþ. till. hans. þar sem hann hefir ekki gert grein fyrir, hvernig fært skuli.
Út af því, sem hv. þm. Seyðf. sagði, að útgjöld hefðu farið 7 millj. fram yfir áætlun, þá er það ekki rétt. Því að ætlazt er til, að greiddar séu upphæðir samkv. sérstökum lögum og þáltill. samtals um 2 millj. kr., sem þannig kemur þar til frádráttar.
Þá þótti mér einkennileg skýring hv. þm. G.-K. um hegningarvert athæfi í sambandi við færslu landsreikninganna, sem varða myndi tugthússök, ef einstaklingar ættu hlut að máli. Nú er vitanlegt, að samskonar hefir átt sér stað áður. En hv. þm. segir, að þá hafi upphæðirnar verið minni. Eftir því mælir hann réttvísina í krónutali. Það er einkennilegt réttarfar, þar sem svo er að farið. Það hefir komið fyrir, að ef menn hafa orðið brotlegir í nógu stórum stíl, þá hafa menn sloppið, en ef brot þeirra hafa aðeins verið af skornum skammti, þá hafa þeir verið dæmdir.