11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

3. mál, landsreikningar 1929

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Ég ætla að minna hæstv. forsrh. á, að þegar hann var spurður, í sambandi við loforð það, er hann gaf um að misbeita ekki ríkisvaldinu, hvað hann ætlaði að gera til að uppfylla það loforð, þá svaraði hann: Bláa bókin skal aldrei koma fyrir almenningssjónir.

Ég þarf litlu að svara hv. þm. V.-Húnv. Ég sagði ekki, að landsreikningarnir væru færðir svo, að það varðaði tugthússök. En ég sagði, að ef ég færði reikninga mína með sama hætti, og færi með þá í lánsstofnanir og fengi þar lán og yrði síðan gjaldþrota og gæfi mig upp, þá lenti ég í tugthúsinu fyrir slíka færslu. Ef ég teldi sjóðseign það, sem ég hefi borgað út, þá er það reikningsfölsun og heyrir undir tugthús. Annars hélt ég, að hv. þm. ætti að vita það, að meira afbroti fylgir meiri hegning. (EA: Að öðru jöfnu). Já, að öðru jöfnu. Framsóknarmaður myndi t. d. fá vægari dóm.