21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (430)

3. mál, landsreikningar 1929

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Í nál. mínu um frv. til fjáraukal. fyrir árið 1929 hefi ég gert grein fyrir, af hverju ég tel ekki að svo stöddu rétt að samþ. þrjár upphæðir, sem leitað er heimildar fyrir í því fjáraukalagafrv. Þessar þrjár uphhæðir eru náttúrlega taldar í LR. fyrir árið 1929, og ég tel að sjálfsögðu ekki rétt að samþ. þær í LR. á meðan þær eru ósamþ. í fjáraukalagafrv. Og jafnvel þó þær yrðu samþ. í fjáraukal., teldi ég ekki rétt, eins og málið stendur, að samþ. þær í landsreikningnum. Hér við skal ég bæta, eins og stendur í nál. mínu á þskj. 381, að það er ýmislegt fleira en þessar þrjár upphæðir, sem er athugavert í landsreikningnum og snertir beint það frv. til l. um samþykkt á landsreikningnum, er hér liggur fyrir. Þar má nefna 33. aths. endurskoðenda. Það er prentvilla í aths. endurskoðendanna; það er talin 34. aths., sem á að vera 33. — Það eru útgjöld upp á kr. 12105.64, sem færðar eru til útgjalda í 25. gr. fjárl., samkv. l. nr. 23 1927, um bifreiðar, og eru þar í innifaldar 4600 kr. fyrir bifreið, en hitt er ýmislegur kostnaður við þetta eftirlit. Út af þessu benda yfirskoðunarmenn á, að það muni ekki hafa verið tilætlun þingsins, er lög þessi voru samþ., að af þeim leiddi nein veruleg gjöld fyrir ríkissjóð.

Ráðh. svarar þessu svo, að þessi bifreið hafi verið keypt handa bifreiðarskoðunarmönnunum, og auk þess sé keypt ýmislegt til hennar, og ferðakostnaður og kaup skoðunarmanna einnig greitt af þessum lið.

Um þetta segja yfirskoðunarmenn í till. sínum til úrskurðar:

„Í lögum nr. 23 1927 er engin heimild til bifreiðakaupa né annara greiðslna úr ríkissjóði. Svarið er því ekki fullnægjandi, og er þessu því skotið til aðgerða Alþingis“.

Mér finnst því ekki ástæða til að samþ. þetta frv. að svo stöddu, þar sem einnig margt annað er athugavert.

Þá er 34. aths., næsta aths. þeirra; það er viðvíkjandi kr. 11174,32, sem í LR. eru talin útgjöld samkv. 25. gr., með tilvitnun til 1. nr. 24 1928, um eftirlit með verksmiðjum og vélum. Út af þessu gera yfirskoðunarmenn þá úrskurðartill., að

„Í lögum nr. 24 1928 er engin heimild til að greiða eftirlitsmönnum með verksmiðjum og vélum annað úr ríkissjóði en ferðakostnað. Svarið er því ekki fullnægjandi, og er þessu skotið til aðgerða Alþingis“.

Svo er loksins 38. gr. aths., sem leiðir athygli að því, að mjög stórar fjárhæðir, þ. á m. til síldarbræðsluverksmiðju, Þingvallavegar, Arnarhváls og landsspítalans, eru taldar endurgreiddar 31. des. 1929, og sjáanlega færðar til gjalda á árinu 1930. Þessar fjárupphæðir eru sundurliðaðar nánar í 38. úrskurðartill., sem borin er fram af öðrum endurskoðandanum, MG, og telur hann rétt, að upphæðirnar verði færðar til gjalda í LR. fyrir árið 1929. Upphæðirnar eru :

til síldarbræðsluverksmiðju kr. 450174,90

— Þingvallavegar . . . . . . . . — 253380,98

— Arnarhváls . . . . . . . . . . . — 115000,00

— landsspítalans . . . . . . . . . — 225000,00

Samtals kr. 1043555,88

gera grein fyrir, hvernig standi á skuldahækkuninni á árinu 1929. Þar er frá því skýrt,

„að á árinu 1929 voru teknar kr. 2569400,00 út af viðskiptaláninu hjá Barcley's Bank, en af þeirri upphæð fór l,5 millj. til Landsbankans, afgangurinn kr. 1065400,00, fór til sjóðsaukningar“.

Með þessu er sagt um ákveðna upphæð, sem ríkissjóður hefir tekið að láni, að henni hafi ekki verið eytt, heldur sé hún í sjóði, og samkv. þessu sýnir reikningurinn hækkaða sjóðseign í árslok 1929. Ég verð að álíta, sérstaklega með tilvitnun til 38. aths., að þarna sé rangt skýrt frá og að þessi hluti af láninu frá Barcley's Bank hafi ekki verið fyrir hendi í sjóði um áramót, heldur hafi sú upphæð verið notuð þegar á árinu 1929. Og ég tel það alveg óviðeigandi og óverjandi, að í slíku skjali sem landsreikningurinn er, með þeim skýrslum, sem honum fylgja, sé þannig gerð tilraun til að villa landsmönnum og lánardrottnum sýn um slíka hluti. Ef ámóta kæmi fyrir hjá einkafyrirtæki, t. d. hlutafélagi eða samvinnufélagi, sem verður að gera opinber eða hálfopinber reikningsskil, mundi það vera talin röng aðferð. Og ég hefi ekki getað fundið neina ástæðu fyrir þessu, aðra en þá, að með þessu sé verið að gefa í skyn, að hagur ríkissjóðs í árslok 1929 hafi verið betri en hann í raun og veru var. Það er þetta, sem ég á við í nál. mínu, þar sem ég tala um, að verið sé að gera tilraun til að villa mönnum sýn. — Ég þarf ekki frekar um þetta að segja að svo stöddu.