21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í B-deild Alþingistíðinda. (442)
3. mál, landsreikningar 1929
Jakob Möller:
Út af þessum ummælum hv. 2. þm. Árn. verð ég að segja það, að mér skildist, að hverjum þm. sé rétt að skjóta úrskurði forseta undir atkv. deildarinnar. Ég vil þess vegna skv. þessu ákvæði 44. gr. þingskapa leyfa mér að skjóta þeim úrskurði hæstv. forseta, að hv. 2. landsk. sé ekki atkvæðisbær, undir atkv. deildarinnar.