07.08.1931
Efri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (476)
7. mál, búfjárrækt
Jón Baldvinsson:
Þeir tala öðruvísi nú, þessir framsóknarmenn, en þeir töluðu í Nd. í gærkvöldi. (PH: Þeir, sem hér hafa talað, töluðu ekki í Nd. í gær). Er það nú ekki allt sama tóbakið? Mér skilst, að bak við þau ræðuhöld og þær samþvkktir, sem gerðar voru í Nd. í gær, standi sami flokkurinn og sá, sem hv. framsóknarþm. Ed. eru i, nema orðið hafi einhver breyt. á síðan í gær, sem okkur er ekki kunnugt enn.
Hv. 3. landsk. sagði, að engin ástæða væri til að samþ. þessa till., sem við höfum borið hér fram. Ég bar fram sem ástæðu afgreiðslu fjárl. og till. hæstv. fjmrh. um að draga allt að ¼ af framkvæmdum þessara fjárl. En ef það er ekki ástæða til að spara útgjöldin nú, þá veit ég ekki, hvenær það er. Ég sé ekki annað en að þessi till. hafi fullkomlega rétt á sér, þegar ríkisstj. álítur nauðsyn á að draga stórum saman nauðsynlegustu útgjöld til framkvæmda í landinu.
Það er rétt, sem hv. 3. landsk. sagði, að þetta er merkilegt mál og nauðsynlegt að styðja að því, að búfjárrækt verði gerð arðvænlegri, — en hvaða orðalag nota framsóknarmenn hér á þingi, þegar þeir eru að mæla á móti ýmsum till., sem mega að gagni koma? Þeir segja, að á svona vandræðatímum verði að draga úr útgjöldunum og ekki ráðast í það, sem hægt er án að vera.
Hv. 3. landsk. segir, að landbúnaðurinn þurfi þessa fjár með, og það er alveg rétt. En heldur þessi hv. þm., að verkafólk þarfnist ekki meiri atvinnu en gert er ráð fyrir að verði árið 1932 samkv. fjárlagafrv., eða að landsmenn þurfi ekki meira af vegum, símum, höfnum eða vitum en gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. því, sem nú er verið að afgreiða upp til Ed.? Sannarlega þurfa menn allt þetta. Við, sem flytjum þessa till., höftun ekkert annað gert en að taka upp rök framsóknarmanna í Nd., sem sýndu sig þar við umr. og atkvgr. um fjárlagafrv. — Hv. 3. landsk. gerir ekki ráð fyrir, að það verði nema um 20–30 þús. kr. útgjöld fyrir ríkissjóð fyrst um sinn. Þetta orðalag hendir til þess, að það væri æskilegt, ef hægt væri að láta mikið fé í þetta, og ég býst við, að það yrði svo eftir skamman tíma. Við þekkjum, hvernig slíkir útgjaldaliðir margfaldast jafnvel á einu ári. Ég geri ráð fyrir, að árið 1933 mundi þessi kostnaður verða kominn langt yfir 100 þús. kr. Ég býst við, að kostnaðurinn fyrsta árið mundi verða um 50 þús. kr., því að bændur mundu fljótt sjá, að þarna væri þeim veittur mikill stuðningur, og þeir mundu auðvitað nota sér hann alveg eins fljótt og þeir hafa verið fljótir að nota sér þann fjárstuðning, sem hingað til hefir verið veittur landbúnaðinum aðallega með sérstakri löggjöf.
Hv. 2. þm. N.-M. var fyrst að ræða um starf mitt í landbn. þessarar deildar að undanförnu og sagði, að það væri undarlegt, að slík till. sem þessi skyldi koma frá þessum æfða landbúnaðarmanni, sem bæri hag landbúnaðarins fyrir brjósti. Ég þykist hafa sýnt það með atkv. mínu að undanförnu, að ég hefi ekki gengið á móti styrktarmálum landbúnaðarins, en ég skil, að þessi bústjóri ríkisins og lærður búfræðingur þykist hafa í öllum höndum við mig og mína þekkingu í þessu máli, því að honum er kunnugt um það eins og öðrum, að ég hefi ekki fengizt við sveitabúskap, þó að ég hafi einu sinni verið smali og sé alinn upp í sveit. Ég viðurkenni hans miklu þekkingu á þessum málum, enda er það sannleikur, að hann hefir ekki verið ánægður yfir því, að ég skuli hafa setið fyrir honum í landbn. að undanförnu. Ég man ekki, hvort hann er kominn þangað nú, en ég hugsa, að hann komist bráðum þangað og geti þá látið þar ljós sitt skína.
Hv. þm. kom svo loks að ástæðunni fyrir því, að ekki ætti að samþ. þessa brtt., og það var þá aðallega formsatriði. Hann lýsti því ekki af sinni miklu þekkingu og lærdómi, hvílíkt gagn þetta gæti unnið landbúnaðinum, heldur var það bara formsatriði, sem hann talaði um, og þótti mér það undarlegt af búlærðum manni.
Hv. þm. sagðist kunna illa við, að fram væri borin till., sem kæmi fram vegna annars máls. Er þetta frv. þá ekkert áhangandi fjárlagafrv.? Útgjöld vegna búfjárræktarlaganna hljóta að lenda á fjárl. á næsta þingi, svo að í þessu er fullt samræmi að forminu til. Hv. þm. sagði ennfremur, að þetta væri óvanaleg og óeðlileg till. Þetta eru nú engin rök, en ef þessi till. er óvanaleg og óeðlileg. hvers miklu fremur mætti þá ekki segja það um brtt. hæstv. fjmrh. á þskj. 207, sem veitir stj. heimild til að draga úr öllum framkvæmdum ríkisins að ¼ hluta, eða 25%, þegar hún hefir leyft sér að eyða meira en 25% fram yfir það, sem Alþingi hefir heimilað. Ef það er vanaleg till. í augum hv. þm., þá sé ég ekki betur en að mín till. sé í alla staði rétt og viðeigandi.
Þá hefi ég minnzt á það, sem fram hefir komið viðvíkjandi þessari till., og bent á, hversu veigalítið það er. Ég hélt, að till. mundi ekki verða tekið svona, heldur mundu framsóknarmenn grípa þetta fegins hendi og reyna að spara landsfé með því að fresta þessum útgjöldum um nokkurt skeið, eins og þeir þykjast vilja spara á fjárl.