12.08.1931
Neðri deild: 27. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (494)
7. mál, búfjárrækt
Steingrímur Steinþórsson [óyfirl]:
Ég býst ekki við að karpa lengi um þetta. Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að það væri nokkuð annað, þó að Búnaðarfél. væri styrkt, en að taka fé beint úr ríkissjóði í þessu skyni. En með þessu viðurkennir Alþingi, að þessa starfsemi þarf að efla og halda henni áfram. Eðlismismunur er enginn á þessu. Féð er í báðum tilfellum úr ríkissjóði.
Sami hv. þm. sagði, að það væri nóg hvöt fyrir bændur að fá betri gripi. En reynslan hefir alstaðar orðið sú, að ríkið hefir orðið að greiða brautina. Nágrannar okkar verja stórfé í þessu skyni, og einstaklingurinn gerir slíkt ekki nema hafa til þess félagsstuðning og fjárhagsstuðning.
Að því er snertir fóðurbirgðafélögin skal það játað, að hugsunarhátturinn hefir breytzt. Bændur eru betur vakandi en áður fyrir því að tryggja skepnur sínar fyrir fóðurskorti. En hér er tvennt að athuga. Stundum stafar fóðurskorturinn af því, að fóðrið er of lélegt, en ekki af því, að það sé of lítið. En þetta sjá menn ekki fyrr en orðið er um seinan að bæta úr því. Þessu eiga fóðurbirgðafélögin að bæta úr. Ég veit t. d. um þrjá hreppa í Strandasýslu, sem hafa varizt vanfóðrun á þennan hátt. En hér verður að vera félagsskapur um og skilningur á því, að því er vel varið, sem fer til að styrkja þessa viðleitni. Og hér er um svo stórt mál að ræða, að þetta mega heita smámunir, sem kosta ekki meira fyrir alla bændur á landinu en 60 þús. krónur.
Það skal fúslega játað, að það er skylda hvers bónda að tryggja búfé sitt sem bezt gegn fóðurskorti. En það vill eigi að síður verða misbrestur á því. Sumir eru gálausir og steypa jafnvel heilum hreppum í voða með gáleysi sínu. Það er því sérstök ástæða til þess að hlynna að þessum félagsskap, til þess að knýja einmitt þessa menn með í samvinnuna.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara um þetta fleiri orðum í sambandi við síðustu ræðu hv. þm. N.-Ísf. Hann vildi helzt fella kaflann um hrossaræktina alveg í burt. Það gæti komið til mála, þegar við erum komnir á það stig, að við getum látið vélar vinna öll þau störf, sem nú eru unnin með hestum. — Hv. þm. getur haft sína skoðun í friði um það, að sumt sé styrkt óþarflega mikið. Ég er ekki á því, enda má líka breyta lögunum, ef agnúar af þessu tæi eða öðru koma í ljós.