12.08.1931
Neðri deild: 27. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (495)
7. mál, búfjárrækt
Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:
Ég vona, að hv. l. þm. Skagf. hafi ekki misskilið orð mín. Ég er ekkert á móti fóðurbirgðafélögum. Ég hefi sjálfur átt þátt í að koma þeim á laggirnar, en gengið illa. En það, sem ég vildi taka fram, er það, að það þarf líka að styrkja aðra atvinnuvegi. Í öðrum löndum er sjávarútvegurinn styrktur með tilraunum um skipasmíðar, veiðarfæri og þar fram eftir götunum. Frakkar veita t. d. verðlaun fyrir útfluttan fisk. Hér eru verðlaun veitt fyrir útfluttar búnaðarafurðir, en allt lagt á sjávarútveginn. Og nú, þegar hann stendur undir þyngstum böggum, þá eru lagðar nýjar byrðar á þennan atvinnuveg, sem ærnar hefir áður.