27.07.1931
Neðri deild: 13. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í B-deild Alþingistíðinda. (50)
1. mál, fjárlög 1932
Lárus Helgason:
Ég á hér eina brtt. við 13. gr. fjárl. Þó það virðist vera hækkun, þá er það í raun og veru aðeins leiðrétting. Undanfarin ár hefir báturinn Skaftfellingur notið 24 þús. kr. styrks úr ríkissjóði. En í fjárlagafrv. fyrir 1932 hefir stj. ákveðið styrk þennan 20 þús. kr. Hvernig þetta hefir slæðzt inn, er mér ekki kunnugt, en rök til þess hljóta að vera lítil. Á þessum sama tíma hafa útgjöld til strandferða aukizt mjög, þar sem nýtt skip er komið til sögunnar. En þess ber að gæta, að strandferðir hafa ekkert batnað hjá Skaftfellingum. Stærri skip geta aldrei komizt á þessar stöðvar, sem bátnum er ætlað að fara um. Um leið og fjárveitingar aukast mjög til strandferða, á að draga úr þeim á þessu svæði. Þetta hlýtur að stafa af einhverjum misskilningi, sem verður að færa í lag. Það er hægt að sýna og sanna, hvernig fjárhagur þessa báts er. Árið sem leið, sem er eitt bezta árið, sem báturinn hefir verið rekinn, var rekstrarhalli á 7. hundrað króna, og þó hafði hann þá 24 þús. kr. styrk. Ef ekki verða veittar nema 20 þús. kr. nú, verður rekstrarhallinn hátt á 5. þús. kr., þó að rekstur bátsins gangi vel. Fé, sem stendur í bátnum, er að mestu safnað saman á því svæði, sem hann vinnur fyrir, sem sé hlutafé. Af þessu fé hefir í mörg ár ekki verið borgaður eyrir í vexti. Þetta hlutafé er ekki nær þess virði, sem það hefir verið talið, því að báturinn hlýtur að vera orðinn minna virði nú en hann var fyrir 10 árum, þó að á hverju ári sé varið nokkru fé honum til viðhalds. Og vitanlega lækka slík skip alltaf í verði, en hækka ekki; þau slitna eins og allt annað. Þar til fyrir 2 árum var þessi bátur styrktur með öðrum flóa- og fjarðabátum. Því var breytt 1929, því að það var bert, að hér var og er ekki um að ræða neina flóa eða firði, heldur stóran kafla af suðurströnd landsins, þar sem um enga höfn eða fjörð er að ræða. Ég held, að ekki sé þörf fyrir mig að eyða löngum tíma í að tala um þessa leiðréttingu, því að hér er ekki um neina hækkun að ræða úr því, sem verið hefir undanfarin ár. Það hefði verið þörf, eins og reikningarnir sanna, að hækka styrkinn, en af því að það verður að halda á öllu sparlega, þá hefi ég ekki farið fram á það að þessu sinni, heldur aðeins, að fjárupphæðin haldi sér, en að lækka hana getur ekki komið til mála. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þessa leiðréttingu. Ég vænti þess, að hv. dm. sjái, að hér er um sjálfsagt mál að ræða. Ef einhver dm. kunna að efast um, að hér sé rétt frá skýrt, þá hefi ég reikninginn í höndum fyrir síðastl. ár, og hann ber það með sér, hvort ég hefi ekki skýrt rétt frá.