30.07.1931
Efri deild: 16. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
5. mál, verðtollur
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég ætla fyrst að svara hv. 2. landsk. Hann hefir nú gert grein fyrir afstöðu sinni í málinu, og vil ég víkja að ræðu hans með nokkrum orðum. Það er ólíkt um hv. 1. og hv. 2. landsk. að því leyti, að hv. 2. landsk. er búinn að taka vissa afstöðu til málsins, en hv. 1. landsk. er ekki búinn að taka endanlega afstöðu til málsins.
Hv. 2. landsk. segist ætla að greiða atkv. á móti frv. Hinsvegar hefir hann ekki bent á neina leið aðra til þess að afla ríkissjóði tekna, og ekki gat hann þess, að hann áliti, að ríkissjóði væri ekki þörf á þessum tekjum.
Það lítur ekki út fyrir, að hv. þm. geri sér ljóst, hverjar skyldur hans og flokks hans eru, þegar hann tekur eingöngu þessa neikvæðu afstöðu til málsins. Og fyrst hv. þm. viðurkennir, að ríkissj. þurfi meira fé en hann fengi, ef verðtollurinn félli niður, þá er það skylda hans að benda á aðra leið til að afla ríkissjóði þeirra tekna, sem nauðsynlegar væru, og þyrfti því sérstaklega að fá, ef fram næðu að ganga þær breyt., sem hv. flokksbræður hans bera fram í Nd. og hv. 2. landsk. er væntanlega sammála.
Ummæli hv. 2. landsk., að Framsóknarflokkurinn og hv. 1. landsk. séu sammála í skattamálum, ætla ég ekki að gera að umtalsefni nú. Það er engin ástæða til að fara að rökræða hér nú um skattamál almennt, en hv. 2. landsk. veit það vel, að í skattamálum ber margt á milli Framsóknarflokksins og íhaldsmanna. Hann telur það bara „praktiskt“ að halda þessu fram í þeirri „agitation“, sem hann lætur nú ganga um land allt.
Ég vil leyfa mér að benda á eitt atriði, sem hv. þm. kom að. Hann sagðist sem sé vilja fella verðtollinn niður til þess að dýrtíðin minnkaði. Ég vil benda á það, að afleiðingin af því, að verðtollurinn félli niður, yrði sú, að auka til stórra muna innflutning til landsins. Verzlunarstéttinni væri það ljóst, að þótt verðtollurinn félli úr gildi, af því að samkomulag væri ekki á þingi um þessa löggjöf, þá mundi hann verða tekinn upp aftur eftir stuttan tíma. Þeir, sem reka verzlun, mundu því keppast um að koma sem mestu af vörum inn í landið, meðan verðtollurinn væri ekki. M. ö. o., ef hann væri felldur niður, mundi hann verka öfugt á við innflutningshöft. Hann mundi, eftir því sem mögulegt væri, örva innflutning, og þá auðvitað sérstaklega á þessum vörum, sem verðtollur er lagður á nú, en margar af þeim eru einmitt þær, sem eru síður nauðsynlegar.
Ég býst við, að hv. þdm. séu mér sammála um það, að á slíkum tímum sem nú, þegar erfitt er að selja vörur landsmanna og ríkið og bankarnir þess vegna í kreppu, þá væri það óviturlegt, ef Alþingi veitti þessu máli þá afgreiðslu, sem hvetti menn til að kaupa og flytja inn í landið þær vörur, sem væru miður nauðsynlegar.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að ræðu hv. l. landsk., sem eins og ég gat um hefir ekki tekið endanlega afstöðu til þessa máls. Sem forsendu fyrir þeirri yfirlýsingu kom hann með ýmsar almennar aths. um fjármálastjórnina undanfarið og aðstöðuna í því sambandi. Hann kom með yfirlit yfir sögu verðtollsins allt frá 1924. Nú ætla ég ekki að gera að umtalsefni þær almennu aths. hv. 1. landsk., en mér þykir vel við eiga að koma nokkuð inn á sögu þessa máls, sem hv. þm. kom með, og draga líka nokkuð af aðstöðunni innan þings og ástæðunum inn og út á við eins og þær voru 1924, þegar hv. 1. landsk. var að taka við fjármálastjórninni. Ég vil líka rifja upp endurminningarnar um það, hvernig þáv. andstöðuflokkur stj. taldi, að honum bæri, eigi síður en stjórnarflokknum, að leysa úr þeim vandræðum, sem þá voru fyrir ríkinu, bönkunum og einstaklingum.
Árið 1924 var að ýmsu leyti svipuð fjármálaaðstaðan og nú. Það höfðu gengið harðindi yfir landið. Og hvað sem segja mátti um fjármálastjórnina áður, þá voru aðstæðurnar að mörgu leyti svipaðar. Sala á innlendum afurðum var erfið, verzlunaraðstaðan var okkur óhagstæð og rétt fyrir þingbyrjun féllu peningar okkar mikið í verði. Þá urðu stjórnarskipti. Hv. núv. l. landsk. og hans flokkur mynduðu nýja stjórn. Vitanlega höfðum við andstæðingar stj. þá sömu aðstöðu og hv. 1. landsk. hefir nú gagnvart þingmeirihlutanum, og við stjórnarandstæðingar höfðum margar aths. frá fortíðinni um fjármálastjórnina, sérstaklega fjármálastjórn samverkamanna hv. 1 landsk. Ég t. d. hafði mikið um það ritað og hafði ekki breytt þar um skoðun. Við hefðum því vel getað, ef við hefðum viljað, haldið uppi deilum um það, en látið stj. eina um það, hvernig reisa ætti við fjárhag landsins. Ég veit, að hv. 1. landsk. viðurkennir það nú, eins og hann viðurkenndi áður, að andstöðuflokkur ríkisstj. hagaði sér ekki svona þá. Við stjórnarandstæðingar, sem sæti áttum þá í fjhn., tókum höndum saman við fulltrúa stj. í þessum málum. Við lögðum mikla vinnu í að fara í gegnum fjárl. og leita eftir, hvar finna mætti leið til að spara og hvar mögulegt væri að draga úr erfiðleikunum. Við stóðum þá við hliðina á stjórnarflokknum til að setja löggjöf um auknar tekjur fyrir ríkissjóð, sem nauðsynlegt var.
Mér þótti vel, að hv. 1. landsk. kom í ræðu sinni inn á endurminningarnar frá þessum tímum, hvernig þingið tók þá afstöðu til þessara mála. Ég vildi bara bæta þessu við um þessar endurminningar og segja frá mínu brjósti, að ég álít, af því aðstaðan er svipuð nú, að andstöðuflokkur þingmeirihlutans áliti það skyldu sína að snúast eins við vandræðunum og andstöðuflokkur stj. gerði 1924. Ég þykist hafa fullkomlega leyfi til að beina þessu sérstaklega til hv. 1. landsk., af því það var hann, sem var sá ráðh., sem naut þessarar samvinnu, naut hennar frá þeim flokki, sem ég tilheyrði og tilheyri enn.
Ég sagði, að aðstaðan væri lík nú og hún var 1924, en hún er að því leyti verri nú, að horfur á sölu ísl. afurða eru nú verri en þá. Allir vita, hvernig það er með sjávarafurðirnar, og nú hafa ný tíðindi komið, sem gera það líklegt, að landbúnaðarafurðirnar fari niður fyrir það, sem nokkur hefir gert sér hugmynd um undanfarið. Það er því nauðsynlegt, að allir standi saman um það, að reyna að leysa vandræðin sem bezt.
Þá vil ég segja nokkur orð út af brtt. hv. þm. á þskj. 140. Fyrri brtt. er um það, að þessi framlenging verðtollsins skuli vara eitt ár, en ekki tvö ár, eins og fram er tekið í frv. Ég tel sjálfsagt að gera það ekki að ágreiningsatriði, ef flokkur hv. þm. leggur áherzlu á, að það sé ekki nema eitt ár. Ég get viðurkennt, að hv. þm. hafi þar nokkuð til síns máls, því að ég geri ráð fyrir, að á þinginu í vetur verði betri tími en gera má ráð fyrir að verði nú, til að taka til rækilegrar athugunar, hvort þessi framlenging skuli gilda áfram, og get ég því mælt með því, að þessi till. verði samþ.
Út af síðari brtt. sinni kom hv. þm. talsvert inn á almennar aths. um vöruverð og dýrtíð í Reykjavík. Ég tel það fremur óviðeigandi við 2. umr. um verðtoll að fara mikið inn á almennar aths. um það efni, svo að ég leiði það hjá mér, en ég verð að láta í ljós þá skoðun, að mér virðist fyrri brtt. hans vera í mótsetningu við þá hugsun, sem fram kemur í síðari brtt. hans. Eftir fyrri brtt. álítur hann, að hér sé um bráðabirgðalög að ræða, og þá er síðari till. í ósamræmi við hana. Ég vil benda hv. þm. á það, að ef síðari till. er samþ., þá verður það til að koma af stað miklum deilum um þetta atriði, ekki fyrst og fremst í þessari deild, heldur í Nd. Hv. þm. veit, að í Nd. hafa komið fram raddir nú nýlega, sem fara í þveröfuga átt við þessa till., ekki eingöngu frá andstæðingum hv. 1. landsk., heldur líka frá áhrifa- og dugmiklum mönnum í flokki hans sjálfs. Hér er stungið upp á að létta verðtollinum af ýmsum þeim vörum, sem framleiddar eru í landinu sjálfu, en þessar till. í Nd. fara í þá átt, að settur verði verndartollur á þessar vörur, til að styðja þá innlendu framleiðslu.
Ég vil ekki fara langt inn á almenn atriði þessa máls, en þegar um var að ræða þá bráðabirgðaráðstöfun, að framlengja verðtollinn til eins árs, þá þótti mér ekki rétt að fara að koma með slíkt deilumál sem þetta. En eins og ég get samþ. þá till. hv. l. landsk., að framlengingin nái aðeins til eins árs, eins finnst mér, að hv. 1. landsk. ætti að geta fallizt á það, að láta hina síðari till. sína bíða til síðari umr. um málið.