31.07.1931
Efri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

5. mál, verðtollur

Jakob Möller:

Það hefir oft heyrzt, að vöruverð hér í Reykjavík væri miklu hærra en annarsstaðar á landinu, og hefir hinni „ágætu skipulagningu“ verzlunarinnar úti um landið jafnan verið þakkað, hversu vöruverðið væri þar miklu lægra. Út af þessu vildi ég leyfa mér að henda á það, að sömu mennirnir, sem hafa beitt sér fyrir þessari „skipulagningu“ verzlunarinnar úti um land, hafa einnig reynt þetta sama hér. Hér var í eina tíð stofnað kaupfélag, en því farnaðist illa og fór brátt á hausinn. Hvernig á þessu stendur, það er gáta, sem ég treysti mér ekki til að ráða, a. m. k. ekki þeim í vil, sem líta á verzlunarmálin með augum hv. 2. þm. Eyf. Ég get ekki lagt neitt upp úr þeim samanburði, sem þessi hv. þm. gerði á vöruverði hér og úti um land, af sömu ástæðum og fram kom hjá hv. 1. landsk. Það fer bezt á, að slíkur samanburður sé gerður af óhlutdrægum aðilja, en því verður ekki búizt við, að stjórn þessa kaupfélags, sem hv. þm. vitnaði í, sé óhlutdræg í svo nákomnu máli (EÁrna: Kaupfélagsstjórnin kom hér ekki að). Þá hefir það verið einhver, sem nálægt henni hefir staðið. Annars hefi ég heyrt sögu úr nágrenni þessa kaupfélags, sem hv. þm. mun hafa átt við, og er sú saga á þá leið, að innanhéraðsmenn leiti til verzlunar í næstu héruð, af því að þeim bjóðast þar betri kjör en hjá þessu ágæta kaupfélagi. Ég fyrir mitt leyti hefi enga ástæðu til að leggja minna upp úr þessari sögusögn heldur en óstaðfestum verðsamanburði eins og hv. 2. þm. Eyf. kom með.

Það er að vísu rétt, að ýmsar vörur eru dýrari hér en úti um land, en til þess liggja ýmsar orsakir, t. d. er hér hærra kaupgjald en líklega nokkursstaðar annarsstaðar á landinu, húsaleigan er dýrari o. s. frv. Ég held t. d., að kaupgreiðsla við brauðgerð sé meiri hér en á þeim stað, sem hv. þm. vitnaði til um brauðverð. (JBald: Það munar 100 kr. á mann mánaðarlega). Já, ég gæti trúað því. Þetta kemur auðvitað fram í brauðverðinu, og þar sem munurinn á brauðverðinu hér og á Akureyri var ekki nema 10%, verður það síður en svo til að staðfesta verðsamanburð hv. 2. þm. Eyf.

Viðvíkjandi því, að andstöðuflokkar núv. stj. hafi ekkert gert til úrbóta í þessu efni hér í Reykjavík, er því til að svara, eins og hv. 1. landsk. benti réttilega á, að þessir flokkar hafa ekki farið með völdin í landinu undanfarið, því að það er misskilningur, ef hv. 2. þm. Eyf. heldur, að þessir flokkar hafi öll völdin í sínum höndum, þó að þeir hafi meirihl. aðstöðu í bæjarstj. Sannleikurinn er sá, að þeir geta lítið sem ekkert í þessa átt sem flestar aðrar án aðstoðar löggjafarvaldsins. Og eina tilraun hafa þó þessir flokkar alltaf gert til að bæta úr ástandinu, þar sem voru till. um að reisa veðdeildina við, svo að byggingar gætu hafizt hér á ný, en sú tilraun strandaði einmitt á hv. 2. þm. Eyf. og flokki hans, eins og hann vel má muna. En út í það mál ætla ég ekki að fara frekar að þessu sinni, heldur mun ég geyma mér það þar til síðar. Það er ýmislegt í sambandi við það mál, sem ég hefði gaman af að minnast á.

Viðvíkjandi því máli, sem hér liggur fyrir, vildi ég segja það, að ég lít svo á, að mjög vafasamt sé, hvort rétt er að afgreiða þetta tekjuaukafrv. eins og nú er ástatt. Þau orð hafa heyrzt úr forsetastóli, að andstöðuflokkum Framsóknarflokksins kæmi það ekkert við, hvenær og hvernig stj. í landinu væri skipuð, en engu að síður vilja þó þessir flokkar ráða því, hvernig þeir greiða atkv. í þeim málum, sem stj. þarf að fá fram í þinginu, og ég tel mjög hæpið að afgreiða þetta mái nú, á meðan allt er í óvissu um það, hvað við tekur, auk þess sem núv. stjórnarflokkur er í ósamræmi við vilja kjósendanna í landinu. Þessi hv. d. er nær því að vera í samræmi við vilja kjósendanna, og tel ég rétt, að stjórnarfl. viti það, að sú er meining andstöðuflokkanna í þessari deild að halda á rétti sínum í þessu efni. Vil ég hér skjóta því að hv. 2. landsk. í sambandi við það, sem hann sagði um sérstöðu sína í þessu máli, að það var ekki nákvæmlega rétt með farið, það sem hann sagði um meðferð málsins á þinginu 1928, að hans flokkur hefði þá verið á móti málinu. (JBald: Hann lét málið afskiptalaust). Ónei. Ég hefi athugað nál., sem fram kom um málið í Nd., og hafa allir nm. skrifað undir það ágreiningslaust, samherji hv. 2. landsk. engu síður en þm. hinna flokkanna. (JBald: Ekki í þessari d.). Ég skal ekki segja um það, en mér þykir ótrúlegt, að hv. þáv. 2. þm. Reykv., sem nú er 8. þm. Reykv., hafi haft meira svigrúm til að taka afstöðu í málinu en sjálfur hv. 2. landsk., en hann skrifaði undir nál. fyrirvaralaust, eins og ég áður sagði.