05.08.1931
Efri deild: 21. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

5. mál, verðtollur

Jón Baldvinsson:

Ég áfellist sjálfstæðismenn ekki fyrir samvinnuna við Framsókn í þessu máli. Ef áfellisdómur felst í því, sem ég sagði, þá veit ég ekki, hvernig maður á að haga orðum sínum.

Hv. 1. þm. Reykv. vildi játa mig bera ábyrgðina á því, hvernig komið væri fjárhag ríkissjóðs. Það getur verið satt að svo miklu leyti sem við Alþýðuflokksmennirnir höfum greitt atkv. með fjárframlögum. En þær einar till. hafa verið samþ. frá okkur, sem við álitum til gagns, þó að þær hafi ekki verið samkv. stefnu hv. 1. þm. Reykv. og hv. 1. landsk. En annars verð ég að segja það, að ég skil ekki þessa nýju vizku um hag ríkissjóðs, sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv., þar sem fjmrh. hefir lýst því yfir, að tekjur ríkissjóðs hafi nú verið jafnmiklar og á árinu 1930. En þá fóru þær 5–6 millj. fram úr áætlun. Hafi því tekjurnar verið jafnmiklar og á sama tíma 1930, þá hlýtur ríkissjóður að eiga gnægð fjár. Og það því fremur, sem ekki hefir verið jafnmikið framkvæmt nú og síðastl. ár. Það getur því ekki verið rétt hjá hv. 1. þm. Reykv., að ríkissjóður sé illa staddur og þurfi lán til daglegra útgjalda.

Hv. þm. var að dylgja með, að stj. ætti hauk í horni þar sem Alþýðuflokksþingmennirnir væru. Hann sagði í öðru orðinu, að við myndum skaffa nægilegt fé í ríkissjóðinn, en í hinu, að vegna þess að ég hefði lýst því yfir við 1. umr., að ég myndi verða á móti verðtollinum, þá hefðu Sjálfstæðismenn þokað áfram samningum um kjördæmaskipunarmálið.

En viðvíkjandi þeim frv., sem við höfum borið fram til fjáröflunar, þá eru þeir peningar bundnir við framkvæmdir, sem við Alþýðuflokksmenn heimtum vegna sérstaklega erfiðs ástands. Það kemur ríkinu því ekki að gagni á sama hátt og verðtollurinn. — Ég þarf svo ekki fleiru að svara hv. 1. þm. Reykv. Ég hefi farið yfir flest, sem máli skiptir í ræðu hans.