14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (545)
5. mál, verðtollur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Áður en ég vík að frv. því, sem hér liggur fyrir, vildi ég enn á ný beina þeirri spurningu til hæstv. stj., eða til þess eina hæstv. ráðh., sem hér er viðstaddur, hvenær við getum vænzt þess að fá að sjá framan í nýja, pólitíska stjórn. Ég verð að segja það einu sinni enn, að varla er hægt að sýna þinginu meiri lítilsvirðingu en þá, að láta það sitja heilan mánuð með ópólitíska bráðabirgðastj. í ráðherrastólunum.
Ennfremur vildi ég beina þeirri spurningu til hæstv. ráðh., hvort sá orðrómur sé sannur, að hann sem forseti væntanlegrar stj. þori ekki að sýna þessari hv. d. framan í væntanlega meðráðh. sína.
Þá vildi ég gera grein fyrir því, hversvegna þessar útvarpsumr. fara fram. Þær fara fram af því, að báðir íhaldsflokkarnir í sameiningu hafa tekið upp þá óhæfu reglu að flaustra þessu máli nefndalaust gegnum þingið, máli, sem skiptir hvern einasta mann á landinu. Að svo mæltu get ég vikið að efni frv., en fyrst vil ég með nokkrum orðum skýra frá undirstöðu flokkaskiptingarinnar í skattamálum.
Í málum þessum eigast við tvær stefnur. Önnur stefnan, stefna Íhaldsflokksins, er sú, að hlífa eignum og tekjum við sköttum, en ná fé inn í ríkissjóðinn með því að leggja tolla á nauðsynja- og neyzluvörur almennings. Hin stefnan, stefna Alþýðuflokksins, er sú, að leggja skatta á arð og eignir þar sem gjaldþolið er mest, og að skattarnir fari stighækkandi, eftir því sem eignir og tekjur eru hærri.
Þessi ágreiningur er undirstaða flokkaskiptingarinnar með hverri síðaðri þjóð, einn þátturinn í stéttabaráttu þeirri um kaup og kjör manna og yfirráð atvinnutækjanna, sem háð er í öllum löndum. Þessi barátta verður æ harðari með skarpari greiningu landsmanna í stéttir og með vaxandi ójöfnun arðsins. Tekjuþörf ríkissjóðs hlýtur jafnan að fara vaxandi með auknum framkvæmdum, og verður þá alltaf skarpari deilan um það, hverjir eigi að leggja fram féð, burgeisarnir eða alþýðan. Það er því eðlilegt, að þessi ágreiningur eigi einna mestan þáttinn í því að skipta þjóðinni í flokka. Þessi deila er þannig einn þáttur stéttabaráttunnar, sem aftur leiðir af þjóðskipulagi því, sem við eigum að búa við.
Tveir af þingflokkunum hafa ákveðna stefnu í skattamálum, Alþýðuflokkurinn og Íhaldsflokkurinn. Alþýðuflokkurinn vill leggja allháa skatta á hátekju- og stóreignamenn, en Íhaldsflokkurinn vill aftur á móti hlífa slíkum mönnum, en leggja tolla á vörurnar, sem fólkið notar, hvort sem það eru brýnar nauðsynjavörur eða ekki. Djúpið milli þessara stefna fer alltaf stækkandi og baráttan milli flokkanna fer sívaxandi með aukinni ójöfnun arðsins. Ójöfnun efnahagsins er nú orðin svo geypileg hér á landi, að hún er varla meiri í öðrum löndum, sem lengra eru komin á þróunarbraut auðvaldsskipulagsins.
Eftir skýrslum að dæma eiga nú 1000 menn 3/4 — þrjá fjórðu — hluta allra skattskyldra eigna hér á landi. Samkv. skattskýrslum frá árinu 1927 voru það ekki nema 1150 menn á öllu landinu, sem höfðu meira en 4000–5000 kr. skattskyldar tekjur að undanskildum persónufrádrætti, og höfðu þar með fullan þriðjung allra teknanna. Allir hinir voru undir þessu marki, og 9000 gjaldendur voru undir því tekjulágmarki, sem telst nauðsynlegt til þess að framfleyta meðalfjölskyldu. Það er því ekkert undarlegt, þótt alltaf aukist ágreiningurinn milli flokkanna um það, hverjir það séu, sem eigi að leggja fram féð í ríkissjóðinn. Og hvaða flokkur hefir haft völdin og hvaða stefna hefir verið ríkjandi, sést bezt á því, hvernig tekjur ríkissjóðs skiptust niður á árunum 1924–1927. Þessi ár nam tekju- og eignarskattur 11,7% af tekjum ríkissjóðs. Beinir skattar námu alls 14,5%. Hinsvegar námu óbeinir skattar alls 85,5% af tekjum ríkissjóðs á þessum árum, og voru þannig fast að því sex sinnum hærri en beinu skattarnir á sama tíma. Aðeins þrír tollar, kaffi- og sykurtollur, vörutollur og verðtollur, námu 40% af öllum tekjum ríkisins á þessum árum, þó að taldar séu með tekjur af stofnunum ríkissjóðs, svo sem pósti og síma.
Þegar um álagningu skatta og tolla er að ræða, ber fyrst og fremst að líta á tvennt: Hag ríkissjóðs og afkomu gjaldenda, m. ö. o., það verður að athuga það, hvernig ríkissjóði verði bezt séð fyrir tekjum án þess að gjaldendum landsins sé íþyngt um of, þegar skattalög eða tolllög eru sett. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að í okkar löggjöf gæti hvorugs. Skatta- og tollalöggjöfin er óhæf handahófssmíð, og stefna hennar er ekki önnur en sú, að hlífa þeim við að greiða skatta, sem bezta hafa aðstöðuna til þess að greiða þá. Niðurstaðan verður svo sú, að beinu skattarnir verða 14,5% af tekjum ríkissjóðs, en óbeinir skattar 85,5%, eða nærri því sex sinnum hærri.
Nú liggur það í augum uppi, að ef tolla og skatta á að leggja á þá menn, sem hafa tekjur, sem aðeins hrökkva til nauðþurfta, þá er það ekki nema þrennt, sem þessir menn geta gert. Í fyrsta lagi það, að eigi þeir einhverjar eignir, þá geta þeir étið þær upp. Í öðru lagi geta þeir leitað á náðir hins opinbera og beðið um sveitarstyrk, og í þriðja lagi geta þeir neitað sér og sínum um lífsnauðsynjar og liðið beinan skort.
Nú hefir hið háa Alþingi með l. um verkamannabústaði frá 1928 slegið því föstu, að til þess að sjá sér og sínum fyrir brýnustu lífsnauðsynjum þurfi hver fjölskyldufaðir að hafa minnst 4000 kr. tekjur, en hinir, sem minni tekjur hafi, eigi rétt á því að fá styrk frá hinu opinbera. Alþingi hefir þá slegið því föstu, að 4000 kr. tekjur hrökkvi aðeins fyrir óumflýjanlegum nauðsynjum. Sé nú lagður tollur á þessar tekjur eða þaðan af minni, þá verður sá, sem í hlut á, að leita til hins opinbera um styrk, eigi hann engar eignir til þess að éta upp eða vilji ekki beinlínis svelta. Heilbrigði hinnar ráðandi stefnu í skattamálum sést bezt á því, að menn, sem orðið hafa að flýja á náðir sveitarfélagsins og látið mannréttindi sín fyrir, hafa oft á sama tíma greitt hærri upphæð í tolla af nauðsynjavörum heldur en sveitarstyrkurinn nam.
Langmest af útgjöldum ríkis og sveitar- og bæjarfélaga er falið í kaupgjaldi og sveitarstyrk. Þessar greiðslur nema fast að 20 millj. kr. á ári. Samkv. útreikningi hagstofunnar eru það a. m. k. 10% af þessari upphæð, eða fast að 2 millj. kr., sem beinlínis eru til orðnar vegna tolla. Það virðist vera léleg fjármálavizka hjá hinu opinbera að leggja á þessa háu tolla, sem gera það að verkum, að það verður að greiða fast að 2 millj. kr. í aukið kaupgjald og aukinn sveitarstyrk, vegna dýrtíðar, sem hið opinbera sjálft skapar með þessum ráðstöfunum. Það, sem gert er með þessu, er ekkert annað en að það, sem tekið er úr öðrum vasanum, er sett í hinn.
Ég gat þess áðan, að bæði Alþýðuflokkurinn og Íhaldsflokkurinn hefðu ákveðna stefnu í skattamálum. Hið sama hefir ekki verið hægt að segja um Framsóknarflokkinn allt til þessa. Hingað til hefir afstaða hans til þessara grundvallarmála verið mjög á reiki. Á kosningafundi, sem ég var á í sumar, lýsti einn af helztu mönnum Framsóknar yfir því, að flokkurinn væri ekki ennþá búinn að taka ákveðna afstöðu til skattamálanna. Þessi staðhæfing var efalaust rétt, þegar orðin voru töluð, en hvort hún gildir ennþá, er aftur á móti mjög vafasamt, og skal ég víkja að því síðar.
Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er farið fram á, að verðtollurinn, sem fyrst var í lög leiddur árið 1924, verði framlengdur um eitt ár, eða til ársloka 1932. Í frv. hæstv. stj. var upphaflega farið fram á, að tollurinn yrði framlengdur til ársloka 1933.
Saga verðtollsins er allmerkileg. Eins og kunnugt er, eru það tveir tollar, sem mestan arð gefa í ríkissjóð, verðtollur og vörutollur. Vörutollurinn var lagður á þegar l. um áfengisbann gengu í gildi, til þess að vega upp á móti þeim tekjumissi, er af þeim hlauzt. Þessi tollur var mesta flausturssmíð, og hefir það lengi verið einróma álit manna, að skipun hans væri óhæf og brýna nauðsyn bæri til þess að flokka vörurnar af nýju — en það hefir aldrei verið gert, og situr því enn við það sama í þeim efnum. Árið 1924 var svo verðtollinum bætt ofan á hinn bandvitlausa vörutoll. Geta menn gizkað á það sjálfir, hve mikillar hagsýni og skynsemi hafi gætt í þessari lagasetningu.
Ástæðan til þess, að verðtollslögin voru sett, var sú, að á árinu 1923 hafði orðið mikill tekjuhalli á fjárlögunum vegna gjaldhrunsins, sem þá stóð yfir. Tollurinn var lagður á til bráðabirgða, meðan gengið væri lágt, en átti ekki að standa lengur en meðan sterlingspundið væri yfir 28 kr., en það var þá 33 kr. Tollurinn var þá ekki ákveðinn lengur en til ársloka 1925. En á þinginu 1925 var hann svo framlengdur til ársloka 1926, síðan var hann framlengdur á árinu 1926 til ársloka 1928, þá frá 1928 til 1930 og loks frá 1930 til 1931. Lögunum hefir nokkrum sinnum verið breytt, en í öllum aðalatriðum eru þau lík því, sem þau voru í fyrstu. Verðtollurinn er lagður ofan á þrjá flokka vörutollslaganna, en í þeim flokkum eru allar vörutegundir nema kornvörur og ýmsar vörur, sem notaðar eru við framleiðsluna, timbur, kol og salt og örfáar fleiri. Allar aðrar vörur eru verðtollsskyldar.
Nú er verðtollurinn ákveðinn 15% af flestum vörum, en 30% af nokkrum vörum, sem taldar eru óþarfar. En með þessu er ekki allt búið. Ofan á þetta bætist vörutollurinn, sem er 1,80 kr. af hverjum 10 kg.
Þær vörur, sem mest eru keyptar og verðtollur hvílir á, eru fyrst og fremst allar vefnaðarvörur og fatnaður. Allur hinn dýrari fatnaður og efni í hann er tollaður með 30%, en allur annar fatnaður með 15%. Það, sem almenningur þarf því að greiða í toll af nauðsynlegum fatnaði og fataefni, svo sem regnkápum, frökkum, nærfötum og vinnufötum, er hvorki meira né minna en 20%, þegar verðtollur og vörutollur eru lagðir saman, eða fimmti hlutinn af verði vörunnar. Sama máli er að gegna um allan borðbúnað og búsáhöld, algengustu hreinlætisvörur og sumar matvörur, sem eru beinlínis nauðsynjavörur. Ég hirði ekki um að telja fleira upp, en yfirleitt má segja það, að verðtollurinn hvíli á flestum nauðsynjavörum almennings.
Verðtollurinn nam 2270 þús. kr. árið 1930, eða 115 kr. á hvert meðalheimili í landinu. Má óhikað gera ráð fyrir, að hann nemi 170–180 kr. að viðbættri álagningu verzlana. Á verkafólki í kaupstöðum og einyrkjum í sveitum, sem eiga mörg börn, verður tollurinn ennþá hærri. Til samanburðar má geta þess, að manni með 10–12 þús. kr. tekjur er gert að greiða um 460 kr. í tekjuskatt. —
Þetta var verðtollurinn einn, en ekki er allt þar með búið. Til viðbótar honum koma vörutollur og kaffi- og sykurtollur, sem til samans nema ca. 100 kr. á hvert meðalheimili í landinu. Það verða þannig fullar 300 kr., sem hvert meðalheimili verður að greiða árlega í þessa þrjá tolla, að viðbættri verzlunarálagningu.
Hinsvegar er manni, sem hefir 100 þús. kr. skattskyldar, ekki ætlað að greiða nema 220 kr., ekki nema 2/3 hluta af því, sem maður, sem hefir 3 þús. kr. skattskyldar, verður að greiða. Meira ranglæti er ekki hægt að hugsa sér, og meiri heimsku getur ekki frá sjónarmiði ríkissjóðs í skattalöggjöfinni.
Þá er afstaða Framsóknarflokksins til þessa máls. Ég sagði áðan, að Framsóknarflokkurinn hefði enga stefnu haft í skattamálum fram á seinasta ár. Sérstaklega vil ég minna á, þegar verðtollurinn var tekinn upp árið 1923. Þá talaði einn af helztu forgöngumönnum Framsóknarflokksins, hv. 5. landsk., um þetta mál úti um land. Þá flutti hann tvær ræður, sem sýna ljóst, hver stefna Framsóknarflokksins var í þessu máli. Í fyrri hluta ræðunnar er hann að tala um það, að hann sé þessu mótfallinn að ýmsu leyti. Hann segir, að tvær stefnur séu uppi í skattamálum. Önnur segir hann, að sé sú, sem hann segist fylgja, að bæta fjárhag einstaklinganna, til þess að fjárhagur landsins í heild batni á þann hátt. Þá talar hann nokkur orð um það, hvað lággengi sé mikið böl fyrir þjóðina. Þar kveður við annan tón en nú í þeim flokki.
Þessu næst spyr hann flm., hvers vegna sé ekki lagður tollur á hveiti. Hann segist hafa séð heila laupa af hveitibrauðum flutta út í togara á höfninni. Þetta eru rök hans fyrir því, að óeðlilegt sé, að hveiti sé ekki tollað.
Í næstu ræðu segist hann álíta heppilegt að leggja stóreignaskatt á í eitt skipti fyrir öll. En svo segir hann, að sér finnist rétt að leggja toll á allan skófatnað nema vatnsleðurskó. Ég tek þetta dæmi, af því það sýnir, á hvaða stigi framsóknarmenn hafa verið í skattamálum til þessa. Af þessu má sjá, að Framsóknarflokkurinn hefir þá ekki verið búinn að taka afstöðu til þessara mála. Annar Framsóknarmaður, hv. 2. þm. S.-M., var einnig á móti frv., en hann tók á því á annan veg. Þessi hv. þm. er sagður einn af helztu ráðamönnum stj. hér á þingi og hefir flutt einna flest frv. fyrir stj. á Alþingi. Hann hélt ræðu á móti frv., og er hana að finna í Alþt. 1924, B. l566.–67. dálki. Þar segir hann svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ástæðurnar til þess, að ég er mótfallinn þessu frv., eru talsvert margar, og mun ég nú telja upp þær helztu.
Fyrsta ástæðan er sú, að ég tel þetta frv. reist á röngum grundvelli. Það er rangt að heimta inn tekjur handa ríkissjóðnum á þennan hátt. Það er hér um neyzluskatt að ræða, en þeir skattar koma jafnan þyngst niður á þeim, sem sízt mega við því, — barnamönnunum“.
Önnur ástæðan segir hv. þm. að sé sú, að þá þegar sé búið að ofbjóða gjaldþoli landsmanna, og bendir því til sönnunar á það, að tveir hreppar og einn kaupstaður (Hafnarfjörður) hafi sent þinginu hjálparbeiðni vegna fátækraþyngsla og atvinnuleysis.
Þriðja ástæðan segir hv. þm. að sé sú, að frv. verði til að auka dýrtíðina í landinu.
Ég er sammála þessum hv. þm. Þessi rök hans á móti frv. eru rétt og standa ennþá í sínu gildi. En ég veit ekki betur en að þessi hv. þm. hafi greitt frv. sitt atkv. í Ed. nú.
Ég er ekki frá því, að það sé álit framsóknarmanna, að það sé ekki sem bezt að hafa ekki tekið afstöðu til skattamálanna, því að á undanförnum þingum og árum hafa þeir verið að reyna að taka afstöðu til þeirra. Og loks á flokksþingi þeirra hér í Rvík síðastl. vetur var samin stefnuskrá Framsóknarflokksins í tolla- og skattamálum. Stefnan er þá þessi:
„Að lækka tolla, sem hvíla á nauðsynjavörum, en auka beina skatta og hækka tekju- og eignarskatt af miklum tekjum og eignum“.
Þessi stefnuskrá var samþ. af Framsóknarflokknum á fundi, sem haldinn var í apríl í vor, og var síðan prentuð með skrautletri á fremstu síðu í Tímanum og öðrum framsóknarblöðum og send út um allt land til að sýna, hvaða ágætismenn þessir framsóknarmenn væru.
Þessi stefnuskrá skýtur dálítið skökku við framkomu stj. hér á Alþingi, því að fyrsta verk stj. á þessu þingi var að reyna að fá verðtollinn framlengdan um 2 ár, en sá tollur er að mestu leyti tekinn af nauðsynjum fólks, þeim vörum, sem eftir stefnuskrá Framsóknarfl. átti að lækka tollinn á, en engin viðleitni er sýnd til að færa þetta í réttlátara horf. Þetta bendir á, að ennþá hafi lítið verið gert í tolla- og skattamálum — nema að gefa loforð. Þannig hafa þeir ginnt og gabbað kjósendur og breytt þvert ofan í það, sem þeir hafa lofað. Ég fullyrði það, að í hverju öðru landi hefði slík framkoma skapað slíkum stjórmnálaflokki aldurtila. Allt öðru máli er að gegna með Íhaldsflokkinn. Það er stefnumál hans að afla ríkinu tekna með því að leggja tolla á nauðsynjavörur. En engu að síður hafa þeir alveg eins og framsóknarmenn ginnt og gabbað sína kjósendur alveg eins og þursa.
Íhaldið hefir haldið því fram, að það vildi setja kjördæmaskipunarmálið mjög á oddinn, að það mundi meina stjórninni að fá nauðsynlegt fé til að reka ríkisbúskapinn og neyða stj. þannig til að gera eitt af tvennu, annaðhvort að stjórna landinu í fullkomnu lagaleysi eða láta undan þeirri sjálfsögðu réttlætiskröfu að koma kosningalögunum og kjördæmaskipuninni í það horf, að allir landsmenn hefðu jafnan kosningarétt. Frá þessu hefir Íhaldsflokkurinn svikizt og þar með gabbað sína kjósendur. Það hefir gengið svo langt, að formaður flokksins hefir látið hafa sig til þess að drepa till. þess efnis, að sú milliþinganefnd, sem skipa á til að athuga þetta mál, skyldi starfa á þeim grundvelli, að þingflokkarnir fengju þingmannatölu í hlutfalli við kjósendafjölda og þar með hrækt framan í kjósendur sína, gabbað þá og ginnt. Fer því vel á því, að þessir tveir flokkar séu hvor með öðrum í þessu máli.