20.07.1931
Efri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (556)

12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þetta frv. er borið fram í sama sniði og í vetur, og get ég vísað til aths., sem fylgdu því þá. Ég vil aðeins leyfa mér að leggja til, að því verði vísað til fjhn.