13.08.1931
Efri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (560)
12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun
Einar Árnason [óyfirl.]:
Það er sjálfsagt ekki neitt sérstakt fyrir okkur hér, þótt nýbreytni í bókhaldi eigi erfitt uppdráttar. Slík nýbreytni hefir alltaf og alstaðar átt mótspyrnu að mæta, bæði frá því opinbera og einstaklingum. Þegar Danir tóku upp breytinguna hjá sér, var örðugt mjög að fá eldri mennina, sem starfað höfðu undir gömlu tilhöguninni, til að breyta til. Þetta er ósköp eðlilegt, og það getur vel verið, að það takist hér eins og sumstaðar annarsstaðar að draga endurbæturnar á langinn.
En nú er það ekki nóg að hafa það á móti breytingu á skipulaginu, að einstök atriði séu ófullkomin. Vitanlega er ekki hægt að setja upp neitt alfullkomið form. Reynslan verður að koma til og þoka þessu í áttina. Út af ummælum hv. 1. landsk. vil ég segja það, að það er langt frá, að ég haldi því fram, að þetta frv. sé fullkomið. Það er öðru nær. Ég er viss um, að þetta nýja bókhald þarf endurbótar við. En það er reynslan, sem verður að leiða það í ljós. Og það eru einmitt þau ákvæði í frv., sem miða að því að skapa þær endurbætur, sem nauðsynlegar verða. En þau atriði vill n. fella í burt. Ég ætla ekki að deila við neinn um það og ætla að sætta mig við það, þótt það verði gert, en álít það verra.
Ég vil aðeins taka það fram út af ræðu hv. 1. landsk., þar sem hann er að setja út á fyrirkomulag það, sem nú er á fjárlagafrv., að það er sniðið eftir danskri fyrirmynd og þetta skipulag hefir reynzt þar mjög vel. En mér dettur ekki í hug, að ekki sé hægt að endurbæta það frá því, sem nú er. En frv. þetta er undirbúið af bókhaldsfróðum mönnum, sem hafa kynnt sér það, hvernig þessu er fyrir komið í nágrannalöndunum. Formið á fjárlagafrv. er skapað af sömu mönnum. Annar þessara manna er viðurkenndur opinber endurskoðandi og ég veit alls ekki til, að hann sé ekki talinn vel fær í þeim efnum.
Hv. 1. landsk. tekur fram í sínu minnihl.nál., að hann telur lagasetningu um þetta ekki nauðsynlega, þar sem stj. geti skipað þessu eftir eigin vild. Þetta er að nokkru leyti rétt. Það er ekki alveg nauðsynlegt, en það er tryggara og betra. Ef sett er löggjöf, þar sem aðalskipulagið er ákveðið, þá gæti það fyrirbyggt deilur um færslu á reikningum ríkisins. Annars gæti alltaf verið um það að deila, ef stj. eiga að skipa fyrir um þetta, og það getur valdið ruglingi og óþægindum, ef hinar ýmsu stjórnir væru alltaf að breyta þessu.
Hv. l. landsk. talaði um fyrirkomulagið í þessu efni í Svíþjóð. Ég vil benda á það, að þetta fyrirkomulag er öðruvísi en það, sem Svíar nota. Þess vegna er ekki rétt að fella hér inn ákvæði, sem Svíar nota. Það fellur hér ekki við.
Hv. 1. landsk. flytur brtt., og skilst mér, að hann telji, að í henni felist aðhald um gætilega fjármálastjórn. Ég sé ekki, að þessi till. valdi þar nokkru um, vegna þess, að þetta liggur opið fyrir, ef litið er á 8. gr. frv., sem hann telur óljósa. Ég er alveg sannfærður um, að hver einasti þm. sér þetta mjög glöggt, og þarf því engin sérstök ákvæði til þess að þeir átti sig á þessum hlutum.
Mér skilst á þessari brtt., að það eigi að miða fyrningar við afborganir skulda. En ég vil spyrja: Hvernig á að haga því? Nú hefir ríkissjóður tekið lán til að koma upp útvarpsstöð, og lánið á að afborgast á 5 árum. Á þá að afskrifa útvarpsstöðina á 5 árum? Mér skilst, að ekki geti komið til mála, að skuldaafborganir séu grundvöllur undir fyrningargjaldi. Ef lán er tekið til hlutar, sem endist lengi, en lánið er tekið til skamms tíma, þá er alls ekki sambærileg fyrning eignarinnar og afborgun skuldarinnar. Og hvernig er svo með eignir, sem engin skuld hvílir á? Mér er ekki ljóst, hvort hv. þm. ætlast til, að fyrning í heild eigi að svara til allra afborgana á ríkisskuldunum. Og ekkert er um það í till., hvernig að skal fara, ef eitt lánið er tekið til skamms tíma og annað til langs. En allt þetta finnst mér grípa hér inn í. Ég get ekki fundið, að þessi brtt. nái þeim tilgangi, sem hv. þm. ætlast til. En það er alveg víst, að þetta fyrirkomulag er bókfærslulega rangt. Þess vegna finnst mér, að ekki komi til mála að samþ. þessa brtt. Það verður að fara um þetta frv. og endurbætur þess eins og verkast vill. En eigi að setja í það ákvæði, sem ekkert erindi eiga og eru á móti reglum, sem annars er fylgt og á að fylgja, þá er betra að bíða, þar til menn sjá skýrar nauðsyn þessa máls. Og ég fyrir mitt leyti hefi fulla trú á því, að þeir menn, sem að þessu finna nú, nái því takmarki að geta gert málið vel úr garði. Ég segi ekki, að þeir séu búnir að ná því, en þeir munu koma til með að ná því, svo framarlega sem þeir fá reglur, sem þeir vita, að ekki verður þá breytt til með, eins og mundi verða, ef löggjöf verður sett um þetta.