19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Ég þarf ekki að bæta miklu við orð hv. 2. þm. Skagf., en ég vil árétta það, að mér virðist engin ástæða til að vísa stóru og þýðingarmiklu máli til n., ef n. á svo ekki að fá tóm til að athuga það. Mér þykir það ennfremur skrítin framkoma hjá hv. form. fjhn., að tilkynna forseta, að málið megi koma á dagskrá án þess að n. hafi fengið tækifæri til að athuga það. A. m. k. get ég ekki séð, að hann hafi haft heimild til að lýsa yfir slíku fyrir n. hönd, heldur aðeins fyrir hönd sjálfs sín. Hv. form. hefði því átt að tilkynna n. þetta, svo að einstakir nm. hefðu fengið ástæðu til að kynna sér þetta nánar.