22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (589)
12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun
Magnús Guðmundsson:
Ég skal ekki tefja hv. d. lengi, en hæstv. ráðh. viðurkenndi, að aths. minar væru réttar, en sagði, að það væru smáatriði og aðeins breyt. á orðalagi. En orðin eru til að láta í ljós, hvaða hugsanir felast á bak við þau, svo breyt. á orðalagi eru í sjálfu sér ekkert smáatriði, eða þurfa ekki að vera það. En eins og hann sagði, er það það, sem bjargar, að með frv. getur ekki verið meint það, sem í því stendur. M. ö. o., það á að bjarga þessu frv., að það er svo vitlaust, að það er ekki hægt að fara eftir því. Og þegar hæstv. ráðh. segir, að frv. sé ónákvæmt að orðalagi, þá þýðir það það, að það er svo vitlaust, að það verður aldrei farið eftir því.
Að því er stöðu yfirskoðunarmanna annarsstaðar snertir, þá er hún mjög ólík því, sem hér gerist, eftir því, sem ég þekki til. Þar eiga þeir daglega að líta á greiðslur, hvort þær eru réttar, en hér endurskoða yfirskoðunarmenn reikninginn eftir að hann er gerður.
Mér dettur ekki í hug að álasa þeim manni, sem undirbjó þetta mál. Ég sé á tveim meginatriðum í frv., að virkilega er maðurinn — þó hæstv. ráðh. segi það gagnstæða — ekki inni í því efni, sem hann átti að búa til löggjöf um, þó hann sé bókhaldsfróður. Hæstv. ráðh. hefir viðurkennt, að það orðalag, að yfirskoðunarmönnum sé heimilt að fela fjmrn. sumt af endurskoðuninni, sé ekki annað en vitleysa, og ennfremur, að hitt sé vitleysa, að yfirskoðunarmenn eigi að líta eftir því fyrirfram, að greiðslur styðjist við lög. Þetta eru vissulega tvö meginatriði.