21.07.1931
Neðri deild: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

37. mál, löggilding verzlunarstaðar að Súðavík

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Þetta frv. var samþ. í Nd. á síðasta þingi, en dagaði uppi í Ed. vegna þingslitanna.

Ástæðan er hér sú venjulega fyrir því að fá löggiltan verzlunarstað, — máske þó ríkari þarna en víða annarsstaðar, vegna þess að fólkinu fjölgar talsvert ört í þorpinu. Einróma áskoranir liggja fyrir frá borgarafundi í þorpinu.

Ég sé ekki ástæðu til að láta málið fara til n., en óska, að það gangi til 2. umr. nefndarlaust.