24.07.1931
Efri deild: 9. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (627)

73. mál, Byggingarsjóður verkamanna í Reykjavík

Jón Baldvinsson:

Frv. þetta var borið fram í hv. Nd. og var afgr. þar í gær í gegnum allar 3 umr., því að nauðsyn ber til, að málinu sé hraðað. Það hefir verið ráðgerð lántaka handa Byggingarsjóði verkamanna í Reykjavík að upphæð 200 þús. krónur hjá Statsanstalten í Danmörku.

Flutningur frv. er samkomulag milli allra flokka, en nauðsyn ber til, að því sé hraðað, svo að það nái afgreiðslu fyrir helgina, og eru það því tilmæli mín, að hæstv. forseti taki málið fyrir á þrem fundum í röð, án þess að því sé vísað til nefndar. Býst ég við, að þetta verði gert þar sem allir þingflokkar eru sammála um, að mál þetta eigi fram að ganga.