31.07.1931
Efri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (691)
16. mál, atvinna við siglingar
Jón Baldvinsson:
Ég vil þakka hv. sjútvn. fyrir góða afgreiðslu á þessu frv. Þótt hún hafi komið fram með þessar brtt., þá eru þær sumpart leiðrétting og sumpart svo lítilfjörlegar, að þær breyta í engu efni frv., nefna hvað sektarákvæðið snertir. Ég get því fallizt á till. og vona, að frv. komist í gegnum þessa hv. deild og verði afgr. sem lög frá þessu þingi.