22.07.1931
Neðri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (755)

45. mál, útflutningur á nýjum fisk

Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Ég geri ráð fyrir því, að þær rannsóknir og athuganir og leitun að leiðum, sem hæstv. forsrh. gat um, muni koma fram á þann hátt hér í þinginu, að hv. sjútvn., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar, geri þá brtt. við frv., og þegar það kemur frá n., megi vænta umsagnar hæstv. forsrh. um, í hverri mynd stj. kýs, að þetta mál sé afgr. (Forsrh.: Það er tilætlunin).

En þá vil ég beina máli mínu til hv. sjútvn. og biðja hana að hraða þessu máli sem allra mest. Það, sem þú gerir, það gerðu fljótt, eins og segir í hinni góðu bók. Ef þetta á að koma að gagni, þarf að hraða málinu svo, að það komi til framkvæmda eigi síðar en í ágúst eða september.