03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

45. mál, útflutningur á nýjum fisk

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Ég vil þakka sjútvn. fyrir eftir atvikum skjóta afgreiðslu þessa máls. Hinsvegar get ég ekki neitað því, að mér finnst þær breyt. sem n. hefir gert á frv., ekki vera til bóta. Því skal ég taka það fram, að þrátt fyrir það, þó að brtt. n. verði samþ., þá mun ég greiða frv. atkv. mitt.

Við 1. gr. frv. er sú breyt. gerð, að í staðinn fyrir, að þessi styrkur sé bundin aðeins við samvinnufélög, þá má veita sama styrk öllum félögum útgerðarmanna og sjómanna. Við þessu væri ekkert að segja, ef ætlazt væri til, að ríkissjóður legði fram svo ríflegt fé í þessu skyni, að unnt væri að fullnægja þörfum allra samtímis, en eftir því sem mér virtist á máli hv. frsm., þá er víst síður en svo, að til þess sé ætlazt.

Það er bersýnilega til þess ætlazt, að byrjað sé með þrjú skip, eða e. t. v. fleiri, ef brýn nauðsyn krefur. En með slíkum skipastól er með öllu ómögulegt að leysa vandræði nema fárra manna á landinu. Ef það er þess vegna meiningin að létta sérstaklega undir með þeim sjómönnum og bátaútvegsmönnum, sem gert hafa með sér samvinnufélög í þessu skyni, þá átti að sjálfsögðu að binda styrkinn við það. En eins og brtt. n. eru orðaðar, þá skiptir það engu máli, hvort það eru tveir eða fleiri útgerðarmenn, sem stofna félagið og fá sjómennina á sínum bátum með, eða hvort það er samvinnufélag allra sjómanna og útgerðarmanna í heilu þorpi. Mig furðar það stórkostlega, að postular samvinnunnar skuli hafa komið með aðra eins brtt. eins og þessa.

Þá er lagt til, að þessar 200 þús. kr., sem stj. má samkv. frv. verja til þessa, séu bundnar við það eitt að veita félögunum lán til þess að afla sér fiskumbúða og til þess að greiða kostnað við leigu skipa.

Ég get ekki séð annað en að það miði til hins verra að vera að binda þetta svona fast í lögum. Ég held, að það ætti að vera kleift fyrir ríkissjóð að leggja fram fé til að kaupa fyrir dragnætur til kolaveiða. Mér er kunnugt um það, að Englendingar, sem semja við báta hér uppi um kaup fiskjar, hafa lagt lán til dragnótakaupa, gegn því að fá greiddan vissan hluta lánsins í fiski. Þetta sjá þeir, að þeim er með öllu óhætt, þar sem afli mannanna, sem þeir hafa lánað og samið við, fer allur um þeirra hendur. Sjómönnunum er það aftur á móti mikið hagræði að geta fengið lán svo snemma, að þeir geti fengið sér veiðarfæri áður en veiðin byrjar. Jafnáhættulaust ætti að vera fyrir ríkisstj. að veita samskonar lán, gegn hlut úr afla, ef hann gengi í gegnum hendur stj. eða skrifstofu, sem hún setti upp í því skyni að hafa eftirlit og umsjón með þessum málum. En það er bersýnilegt, að eigi þessi nýbreytni að verða til þeirrar hjálpar, sem ég vænti, þá verður að leggja meiri áherzlu á að veiða kola og annan dýran fisk til útflutnings en gert hefir verið hingað til. Þar er hinna mestu framfara að vænta, ef þessi veiði er upp tekin og útflutningur á lúðu nær að aukast.