03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (762)

45. mál, útflutningur á nýjum fisk

Pétur Ottesen:

Ég ætla, að hv. þm. Vestm. geti ekki litið svo á, að ég hafi verið að vekja neinar deilur um þetta mál. Ég var að benda á fyrirkomulags atriði, sem ég áleit, að betur væri fyrir komið á annan veg en hér er gert ráð fyrir, og auk þess kom ég með fyrirspurn, sem ég hefi nú fengið svar við. Út af þessu fyrirkomulagsatriði vil ég segja það, að ég sé ekki, að hjá þeim hafi neitt það komið fram, sem eiginlega bendir á, að þetta út af fyrir sig sé svo nauðsynlegt.

Þeir hafa verið að tala um, að það væri óforsvaranlegt að ætla þessu fyrirtæki enga yfirstjórn, þar sem ríkissjóður legði talsvert fé í hættu með því að taka skipin á leigu. Ég sé nú ekki, að ríkissjóði sé þetta fé neitt betur tryggt, þó að Skipaútgerð ríkisins hafi þetta með höndum, eða þó að söluskrifstofa sé sett upp, þar sem vitanlega er lafhægt að tryggja afskipti ríkissjóðs með því að láta hann fá forgangsveð í aflanum fyrir flutningskostnaði skipanna.

Út af þessu ákvæði um söluskrifstofuna skilst mér, að þeir, sem senda fisk með þessum skipum, séu ekki skuldbundnir til að nota þessa skrifstofu, og þurfi þá ekki heldur að taka þátt í þeim kostnaði, sem af henni leiðir (SvÓ: Alveg rétt). heldur eigi hann eingöngu að koma á herðar þeim, sem nota hana til milligöngu fyrir sig.

Ég get vel sætt mig við þessa skýringu á nál., að n. ætlist til, að fyrst og fremst sé uppfyllt það skilyrði, að félagsskapur sé til fyrir þennan útflutning, sem sé settur til þess, að þeir gangi fyrir þessum útflutningi, sem hafa skilyrði til að afla fljótlega farms í þessi skip, það séu þessir staðir, sem eiga að fá skip til þessara flutninga, og að þetta eigi að koma fram sem varúðarráðstöfun við því, að ekki sé verið að láta skipin elta uppi litlar útgerðarstöðvar eða að þau taki fisk, sem hefir verið safnað saman úr mörgum stöðum, sem er bæði dýrt, og mætti eins búast við, að farmur, sem væri þannig tekinn, væri ekki eins hæfur til sölu eins og þar, sem mikið er aflað á sama tíma.

Hv. frsm. talaði um, að þeir staðir ættu frekast að ganga fyrir, þar sem einhver rekspölur væri kominn á útflutning á nýjum fiski. Þetta er aðallega á tveimur stöðum. Annar staðurinn er Vestmannaeyjar. Þaðan mun nýr fiskur hafa verið fluttur út síðasta ár, en hinn staðurinn er Ísafjörður. Annarsstaðar hafa engar framkvæmdir orðið í þessu, nema þar sem einstöku sinnum hefir ef til vill tekizt að selja í botnvörpunga, þegar fiskur hefir verið fyrir hendi, þegar togararnir hafa verið að leggja af stað til Englands og svo hefir staðið á, að þeir hafa ekki verið fullfermdir af fiski, en sú aðstaða er svo hæpin, að það er ekki hægt að byggja á henni.