03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (764)
45. mál, útflutningur á nýjum fisk
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Ég verð að víkja örfáum orðum að ræðu hv. þm. Borgf. Ég skildi orð hans svo, að hann hefði grun um, að eftir þeim orðatiltækjum, sem n. hefir í 1. og 4. gr. frv., geti svo farið, að þeir, sem mesta þörf hafa stuðningsins af flutningunum, mundu fara þeirra á mis, ef þessi ákvæði frv. yrðu samþ.
Ef þetta væri rétt skilið, þá hefði illa til tekizt. En ég get ekki fundið, að nokkur heil brú sé í þessum tilgátum hv. þm. Mér finnst bæði 1. og 4. gr. taka það skýrt fram, að þessi stuðningur sé fyrst og fremst ætlaður þeim, sem ekki geta komið fiski sínum til útlanda í kældu ástandi af eigin rammleik. Það má vera, að finna mætti skýlausari orðatiltæki um þetta, en ég sé ekki, að það skorti nákvæmni í orðalagi.
Að því er snertir aths. hv. þm. um áhættu ríkissjóðs, þá finnst mér hún vera næsta lítil, þegar þess er gætt, að flutningar munu hefjast á þeim tíma, þegar vertíð er víðast á landi og veðurátt hagfelldust. Þá hlýtur flutningurinn að vera nægilegur og því nóg fyrir skipin að gera, og það þótt fleiri væru en hér er gert ráð fyrir. Ríkissjóður getur því ekki stefnt neinu í voða, því að flutningsgjöld yrðu vitanlega ákveðin með það fyrir augum, að flutningurinn bæri sig.
Hv. flm. hefir aftur komið með sömu kvörtun og áður, að tekið væri í burtu úr frv. samkv. till. n. ákvæðið um það, að félagsskapur sá, sem stuðningurinn er veittur, sé með samvinnusniði, en aftur sé tekið upp rýmra ákvæði, að stuðningurinn sé veittur sölufélagsskap á hverjum stað.
Þetta byggist á því, að í samvinnulögunum er gert ráð fyrir ákveðinni tölu félagsmanna, ekki færri en 15, til þess að það geti heitið samvinnufélag. Þetta ákvæði og fleiri formsatriði laganna þótti n. of þröng. Þótt félagar væru ekki nema 12 í stað 15, sem samvinnulögin gera ráð fyrir, þá er sjálfsagt að veita þeim einnig stuðning, ef um það flutningsmagn er að ræða, að skaðlaus sé viðkomu skipanna. Það segir sig sjálft, að sjómenn og fiskimenn eru hér ekki útilokaðir. Auðvitað spillir það ekki, þótt félagsmenn séu fleiri en 15. En mér finnst það undarlegur skilningur hjá hv. flm., ef honum finnst, að n. með þessum breyt. sé að stuðla að því, að einstakir fjáraflamenn geti einir setið að þessum stuðningi, sem frv. gerir ráð fyrir. Mér finnst hann ekki geta góðs til, að ætla n., að hún vilji gera slíkt.
Að öðru leyti sé ég ekki þörf að lengja umr. um þetta mál.