28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
1. mál, fjárlög 1932
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Ég skal fyrst geta þess, að eftir samtali við hv. frsm. fjvn. höfum við flm. II. brtt. á þskj. 118, um 90 þús. kr. erlent lán, tekið aftur þá till. til 3. umr., svo að hægt verði að taka hana til nánari íhugunar eða koma með hana aftur í annari mynd. Ég gat ekki hlýtt á ræðu hv. frsm. í gærkveldi, en ég hefi heyrt, að hann hafi litlum andmælum hreyft gagnvart till. okkar hv. þm. Borgf. undir XXXII. Hann mun að vísu hafa sagt, að það þyrfti máske í einstökum liðum að greiða nokkurt fé umfram áætlun, og því þyrfti sérstakan fyrirvara gegn því, og við flm. höfum einmitt gert ráð fyrir slíku, er við segjum: „nema um óvænta og bersýnilega nauðsyn sé að ræða“. Um þetta atriði álít ég okkur því sammála. Við könnumst við, að alltaf getur eitthvað brugðið út af í einstökum liðum, svo að stj. neyðist til að greiða meira fé en áætlað hefir verið, og við göngum inn á það svo fremi það sé bersýnilega nauðsynlegt, en annars ekki. Af því að hv. frsm. fór svona vægt út í þessa till., skal ég ekki fjölyrða miklu frekar um hana, en vil þó aðeins geta þess, að ég trúi ekki öðru en að hv. þdm. geti greitt henni atkv. sitt, enda styður það mig í þeirri trú, að ábyrgðin gagnvart kjósendunum hlýtur að gera sitt til, að þeir rísi ekki gegn till., því að fyrst og fremst eru þeir kosnir með það fyrir augum, að þeir gæti hags og fjármuna ríkisins.
Því hefir verið hreyft hér í deildinni, að fjárlögin mætti afgr. tekjuhallalaus, þótt þær brtt., sem fyrir liggja, yrðu samþ. Hv. frsm. gat þess fyrir nefndarinnar hönd, að á því myndi enginn möguleiki, en ég vil lýsa yfir því, að n. hefir enga afstöðu tekið til þess máls, eins og sjá má af því, að hún hefir ekki afgr. neinn tekjubálk.
Ef sú till. yrði samþ., sem gengur í þá átt að hinda hendur stj., þá myndi ég óhræddur við að láta hana fá nokkurt fé í hendur umfram það, sem áætlað hefir verið, en ef svo verður ekki, þá sé ég ekki annað en að Alþ. verði að taka upp þann sið, að áætla tekjurnar eins og líklegt er, að þær verði, en hverfi frá þeirri eldri reglu, sem gilt hefir í þessu efni, að áætla tekjurnar þær lægstu, sem hægt hefir verið að búast við, að þær gætu orðið. Þess vegna hefi ég viljað, að n. frestaði frekari aðgerðum þar til útséð væri um, hvaða afgreiðslu þessi brtt. fengi. Ef að á að láta. stj. haldast sú sóun uppi, sem hún hefir gert sig seka í til þessa, þá vil ég heldur, að Alþ. búi svo um hnútana, að stj. verði frekar neydd til að draga úr útgjöldum en auka þau fram úr því, sem þinginu hefir þóknazt.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að brtt. XXVII. Ég er ekki vel ánægður með form hennar, þótt ég telji það réttara að áætla í fjárlögum ákveðna upphæð til atvinnubóta heldur en að skella fram frv. um tekjuauka í því augnamiði, eins og sumir hv. þdm. virðast hallast að. Ég vil hafa einhvern hemil á óskunum eftir fénu, og ég álít, að því verði bezt náð með því að ákveða, að hlutaðeigandi héruð skuli leggja eitthvert fé á móti ríkissjóðsframlaginu, þannig að þau sýni, að þau hafi fulla þörf fyrir féð og vilji leggja eitthvað á sig til þess að létta af atvinnuleysinu. Ég myndi heldur kjósa, að ákveðið væri, til hvers fénu skyldi varið, en till. stendur til bóta, þótt hún yrði samþ. nú.
Ég skal ekki fara að ræða mikið við hv. frsm. um form fjárlaganna. Mér þótti vænt um að heyra það, að hann viðurkenndi, að gallar væru á því, eins og t. d. það, að stofnanir ríkisins væru þar á víð og dreif, en ættu að vera í einni og sömu grein. Það virðist líka harla óeðlilegt, að stofnanirnar séu færðar ýmist í gjaldaeða tekjubálk, því að slíkt fyrirkomulag er þungt og erfitt við að eiga. Ef áætlað er með nettóupphæð einni, þá er líka óeðlilegt að hafa þetta svona, hvort sem tekjur eru af fyrirtækinu eða ekki, og þá hygg ég, að hentara væri að hafa gamla formið.
Ég veit ekki, hvort ég á að fara að gera að umtalsefni ræður hv. þm. Dal. og hv. l. þm. Skagf., en það er freistandi að minnast á þessa nýju fjármálaspeki hv. 1. þm. Skagf. Hann sýnist glöggur á það, hvar hægt sé að finna nýja skattstofna fyrir ríkið. M. a. sagði hann, að hægt væri að leggja skatt á „luxus“-íbúðir. Hann sagði, að hér væru margir menn, sem byggju í fínum „villum“ og hér væri því hægt að ná allmiklu fé í ríkissjóð. Ég veit nú ekki, hvort menn eru færari um að greiða fé í ríkissjóð, þó að þeir búi í dýru húsnæði. Ég held þvert á móti, að þeir, sem það dýra húsnæði hafa, eigi oft erfiðara með að greiða ríkissjóði skatta en þeir, sem minna hafa húsnæðið, því að það góða húsnæði er svo dýrt, að það er örðugt fyrir þá að greiða ríkissjóði háa skatta þar ofan á.
Þá vildi hv. þm. ekki ganga inn á það, að til landbúnaðarins hefði verið veitt of mikið fé. Hann sagðist ekki vilja taka undir með þeim blöðum, sem hefðu kallað landbúnaðinn deyjandi atvinnuveg. En sannleikurinn er sá, að þetta hefir enginn gert. Það er ekkert nema staðlaust fleipur, þegar verið er að bera það fram, að hér sé ágreiningur um það fé. Það, sem deilt er um, er það, að stj. tekur valdið af Alþingi, leyfir sér að veita meira fé en henni er leyft. Það kvartar enginn undan því út af fyrir sig, þó að mikið fé sé veitt til jarðræktar eða til vega, brúa, vita eða síma, heldur kvarta menn undan því, að stj. tekur sér vald til að veita stundum eins mikið og stundum miklu meira en henni er leyft. En þó tekur út yfir, þegar hún hefir leyft sér að draga úr eða jafnvel fella alveg niður aðrar fjárveitingar, eftir því sem henni hefir boðið við að horfa. Það er alveg eins og hún hafi verið beinlínis að verzla þar, verið að kaupa einhver viss kjördæmi með því að veita féð á þennan hátt.
Hv. þm. var að tala um Reykjavík. Hann virðist vera vel þjálfaður í því frá kosningafundunum í vor að ala á þessum kala. Hann sagði, að í Reykjavík væri mest varúðarleysi. Það væri gaman að vita, hvað hann á við. Er það kannske fjármálastjórn Reykjavíkurbæjar? Ef svo er, þá er það alls ekki rétt, því að fjármálum Reykjavíkur hefir verið stjórnað af hinni mestu varúð, og hagur bæjarins í þeim efnum er ágætur, ekkert líkur því, sem hagur ríkisins er. Það hefir mikið verið framkvæmt, en þó ekki verið lagt út í nema arðvænleg fyrirtæki, svo að bærinn hefir þar ekki þurft að bera neinn kostnað. En ég býst nú fremur við, að hv. þm. hafi átt við það, sem svo oft hefir verið sagt, að einstaklingarnir væru óspilunarsamir, hvað þeir eyddu miklu fé og hvað bankarnir tækju háa vexti, sem væri að kenna ábyrgðarleysi ákveðinna fjármálamanna, auðvitað helzt í Reykjavík. En það er einkennnilegt, að þessi sami hv. þm. var nýlega að tala um — og lagði mikla áherzlu á — þennan mikla auð í Reykjavík. Þetta er líka kunnugt úr ræðu hans, þegar hann var að tala um, að leggja mætti skatt á menn fyrir það, hve miklar og dýrar íbúðir þeir hefða. Hann var þarna á sama augnablikinu að tala um þessa miklu óspilunarsemi og allan þennan mikla þjóðarauð, sem hann sagði, að hefði sogazt til Reykjavíkur. Ég veit ekki, hvað hann hefir átt við með þessum þjóðarauð. Þjóðarauður er nú fyrst og fremst landið sjálft. Ekki hefir Reykjavík þó sogað landið sjálft í sig. Það er til eins og áður, og er miklu verðmætara en það var. Sá þjóðarauður er því meiri sem meira hefir verið unnið. Þessi þjóðarauður hefir því vaxið að miklu leyti fyrir peninga úr Reykjavík, fyrir það, að Reykjavík hefir haft þessa gjaldgetu. Þess vegna hefir verið hægt að leggja fram jarðræktarstyrkinn og fé úr byggingar- og landnámssjóði meira en áður var. Ekki hefir búfjárstofninn minnkað. Hann er þjóðarauður. Ekki hefir Reykjavík verið nein blóðsuga þar. Reykjavík kaupir nú afurðir bændanna dýrum dómum. Hún hefir sogað þær til sín þannig, að hún hefir greitt fyrir þær ríflegt verð, svo að þær sveitir, sem bezt hafa notið markaðarins í Reykjavík, eru nú stærstu landbúnaðarsveitir landsins, þó að þær hafi áður verið fátækar og litlar. Þessir Reykvíkingar, sem hafa skapað þennan auð í sveitunum, eru þessir í alla staði ómögulegu menn, sem eiga að vera að setja alla þjóðina á höfuðið, eins og bóndi á Austurlandi sagði nýlega á fundi, sem ég var á, að Reykjavík væri sú blóðsuga, sem sygi merg og blóð úr allri þjóðinni.
Þá vildi hv. þm. ekki kannast við, að það fé, sem færi til landbúnaðarins, væri atvinnubótastyrkur, t. d. jarðræktarstyrkurinn. Ég veit eiginlega ekki, hvað það er, sem hann kallar þá atvinnubótastyrk. Mér virðist, að allt það fé, sem fer til einhverra verklegra framkvæmda, sé atvinnubótastyrkur, alveg eins, þó að bændur vinni að þeim framkvæmdum sjálfir. Þeir fá sitt kaup með því að bæta afkomu sína, þegar þeir rækta jörðina. Þeir borga sér ekki kaup eins og verkamönnum er borgað það, en þeir fá kaup sitt með bættri afkomu sinni. En þetta er engin ölmusa, og ég vil engan slíkan atvinnubótastyrk nema þá handa þeim, sem sveitar- og bæjarfélög verða að sjá fyrir, af því að þeir hafa ekki sjálfir getað séð fyrir sér og skylduliði sínu.
Annars eiga allir þessir styrkir og þetta fé að ganga til þarflegra hluta. En ég get ekki skilið, hvers vegna þessi hv. þm. kvartar undan því, að atvinnubótastyrkur skuli ekki vera veittur sveitunum. Hann grobbaði af því, að bændurnir gætu þó, guði sé lof, komizt af án þess að fá hjálp.
Ég veit ekki, hvort ég á að fara að minnast á ræðu hv. þm. Dal., af því að hann er ekki við. Ég ætla ekki að vita hann fyrir hlutdrægni í sinni embættisfærslu. Ég er sjálfur fremur ókunnur útvarpinu, af því ég hefi ekki viðtæki, en mér fannst hann ásaka sjálfan sig um leið og hann afsakaði sig, þegar hann var að ásaka sjálfstæðismenn. Hann sagði, að flokksbræður hv. þm. Vestm. hefðu misbeitt útvarpinu þannig, að það hefði orðið að taka í taumana. Hann hefði ekki átt að minnast á þetta, þar sem aðgerðir, sem komu út af þessu, sýna, hvað vel var vakað yfir því, að útvarpið kæmi ekki með neitt, sem væri ákveðnum flokki til hnjóðs. Ég veit ekki betur en að meðan skeytum var útvarpað frá stöðinni á Melunum, hafi verið leyfilegt að útvarpa hverju sem var, jafnvel þó að það væri eitthvað pólitískt. T. d. ef ég á heima norður í landi, má þá kunningi minn í Reykjavík ekki láta mig vita um það, sem þar gerist? Það er auðvitað borgað fyrir skeytið, og engin lög banna að senda það. En af því sagt var frá fundum sjálfstæðismanna, þá var sett ákvörðun um það, hverju mætti ekki útvarpa, t. d. greinargerðum fyrir till., af því að einu sinni var símuð grg. fyrir till., sem samþ. var á fundi sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Þess vegna mátti ekki útvarpa grg. af pólitískum fundum. Þannig eru varðhundar, — ég legg enga sérstaka áherzlu á orðið hundur, — sem gæta þess, að engu skuli útvarpað, sem getur verið til hnjóðs a. m. k. valdhöfunum.
Þá er eitt atvik, sem ég veit, að mörgum þótti einkennilegt. Kaupsýslumaður nokkur, sem orðið hafði fyrir miklu óláni, var dæmdur í hæstarétti. Hann stóð nærri einum fyrrv. þm. Sjálfstæðisflokksins og var mikill vinur margra manna úr þeim flokki. A. m. k. hefir einhver sjálfstæðislykt þótt vera af honum, því að haldið þið ekki, að dómurinn hafi verið lesinn upp í útvarpið. En það voru ekki lesnir upp ómerkingardómar um ýmis stóryrði Tímamanna. Nei, þá var ekki verið að lesa upp.
Annars er þetta enginn eldhúsdagur um útvarpið, en fyrst farið er að minnast á þetta, þá vil ég benda á fréttina, sem kunngerð var í útvarpinu um stúdenta, sem fóru austur á Þingvöll til að halda upp á stúdentsafmæli sitt. Þá kom frétt í útvarpinu um, að þeir hefðu verið fullir og sýnt af sér óspektir. Ég þekki nú þetta sjálfur frá námsárum mínum. Þá bragðaði enginn vín af stúdentunum, en allir létu eins og þeir væru blindfullir, gengu um göturnar með söng og hávaða og vöktu menn af svefni. Það var ekki af því, að þeir væru drukknir, en allir voru svo glaðir yfir því að hafa lokið af þessu námi. Það er blátt áfram skammarlegt, að menn skuli leyfa sér að útvarpa fregnum um annað eins og það, að þessi hópur ungra manna hafi verið drukkinn á Þingvöllum.
Annars er vel til fallið, ef dæma á um útvarpið, að minna á, hver afskipti það hefir haft af Alþingi. Öll saga útvarpsins á þingi er ein óslitin raunasaga að þessu leyti. En af því þetta mál er ekki viðkomandi fjárlögunum, því máli, sem hér liggur fyrir, þá fer ég ekki frekar út í það nú, en mér fannst ég ekki geta setið hjá þessum eldhúsumræðum, sem hv. þm. voru að henda hér um salinn.