28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

1. mál, fjárlög 1932

Einar Arnórsson:

Hv. frsm. fjvn. furðaði sig á því, að Alþýðuflokksmenn skyldu hafa lýst yfir því, að þeir aðhylltust brtt. mína og hv. þm. Vestm. Ég furða mig ekkert á því, vegna þess, að okkar till. gengur lengra en þeirra. Þeir eru ekki svo skyni skroppnir, að þeir viti ekki, að þótt okkar till. verði samþ., þá er mikið atvinnuleysi samt í ýmsum stöðum hér á landi, svo að sveitar- og bæjarfélög yrðu að leggja fram miklu meira fé en kæmi í hlut hvers þessara aðilja af ríkisfé. Þetta er okkur flm. ljóst, og þess vegna bundum við ekki till. okkar neinu skilyrði um framlag frá þessum hlutaðeigendum. Við vissum, að það væri óhjákvæmilegt, ef atvinnuleysi yrði mikið, að bæjar- og sveitarfélög legðu fram fé og e. t. v. langtum meira en hér er farið fram á. Þeir hv. þm., sem mæla á móti till. og þ. á m. hv. frsm. tala um, að óvarlegt sé að fara fram á svo mikla fjárhæð sem þessa, án þess að við komum fram með till. um tilsvarandi tekjuaukningu. En ég hefi bent bæði honum og hv. 1. þm. Skagf. á með tölum, sem ennþá hafa ekki verið hraktar, að tekjuáætlun fjárlaganna á nokkrum liðum er 3 millj. kr. lægri en það, sem kom inn á þessa liði árið 1929.

Ég gat þess að vísu, að nokkrir af þessum liðum eru öðruvísi nú, sérstaklega verðtollurinn og vörutollurinn, og ég tók ekki útflutningsgjaldið, en þar er samt lægri áætlun en það nam þetta síðasta ár; hinsvegar eru flestir af þessum liðum þannig, að með núv. þjóðskipulagi geta þeir ekki lækkað mikið frá því, sem þeir voru árið 1929. Hv. frsm. hefir ekki rengt þessar tölur mínar. Sú tala, sem hann getur fært fram um hækkun gjalda, stendur heima við það, sem ég fann út, en það var samt svo, að þær tekjur, sem inn hafa komið á þessa liði árið 1929, eru 8 hundr. þús. kr. hærri en þarf til að fullnægja útgjaldatill. frá hv. fjvn. og þm. Ég get ekki horfið frá því, sem ég sagði, að það væri alls ekki rétt að áætla tekjurnar miklu lægri en þær hljóta að verða.

Svo kom hv. frsm. með þá hugsun, að það væri skynsamlegra að hafa ákvörðunina þannig í fjárlögunum, að ríkisstj. væri heimilt að veita fé til atvinnubóta eftir þörfum. Ef okkar till. er óvarleg, þá er þessi till. það ekki síður, því að það gæti því miður farið svo, að það þyrfti að fara langt fram úr þessari upphæð, sem við fórum fram á hér. Ég bendi aðeins á þetta til þess að sýna það, að hv. frsm. er ekki gætnari í þessu máli en við hinir, og að hann getur jafnvel hugsað sér að fara lengra en við höfum lagt til.

Ég má víst ekki hafa þetta nema stutta aths., en ég verð aðeins að minnast á það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að í þessari till. væri betur ákveðið, hvaða verk skyldi vinna. Ég skal fallast á, að það væri gott, ef það væri hægt, en ég er hræddur um að þótt það væri gert, þá væri það varla hægt nema með svo almennum orðum, að lítið gagn væri í því, þegar ætti að framkvæma till.

Mig furðar á því, að hv. frsm. skuli ekki hafa látið sér skiljast, að þegar sett eru ákvæði um tiltekna upphæð í fjárlög, sem stj. má eyða, þó að ekki sé ákveðið, til hvaða framkvæmda eigi að nota það fé, þá er munur á því og að eyða fé til einhverra framkvæmda, þegar engin heimild er fyrir því í fjárlögum. Það er t. d. munur, hvort lagður er vegur fyrir eitthvað af þessu fé, sem um ræðir í XXVII. brtt., eða að unnið væri eitthvert verk, sem alls engin fjárveiting er fyrir. Og þó að Alþingi feli ríkisstj. að ráðstafa einhverri fjárhæð, án þess að tiltaka nákvæmlega, hvað skuli vinna fyrir hana. þá er ekki hægt að segja, að stj. brjóti vilja þingsins, þó að hún noti það fé. Þingið er þá búið að leyfa það. En ef engin heimild er fyrir því fé, sem varið er til verksins, þá er gert meira en Alþingi hefir leyft.