15.08.1931
Neðri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (803)
168. mál, Útvegsbanki Íslands h/f á Ísafirði og Akureyri
Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:
Ég heyri af ræðu hv. frsm., að ekki er um það að ræða eða að leggja útibúin niður, enda væri það annað en Ísfirðingar bjuggust við í fyrra, er þeir lögðu fram 100 þús. kr. í Útvegsbankann með því skýlausa fororði, að útibúið héldi starfsemi sinni áfram. Nú má svo, að útibúin starfi eingöngu að innheimtu skulda vegna veltufjárleysis, en þess er að vænta, að bráðlega rakni svo úr, að bankinn sjái sér fært að veita meira lánsfé til útibúanna á Akureyri og Ísafirði en verið hefir undanfarið.