03.08.1931
Efri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

125. mál, fasteignamat

Jón Þorláksson:

Eins og hv. frsm. tók fram, hefi ég skrifað undir nál. með fyrirvara, og þýðir fyrirvari minn það, að ég get fallizt á, að slík yfirmatsnefnd sé skipuð til að endurskoða og samræma jarðeignamatið í landinu, en hinsvegar get ég ekki fallizt á það, að slíkri n. sé falið að breyta fasteignamatinu í kaupstöðunum. Við samanburð á jarðeignamatinu í sveitum landsins hafa menn ýms gögn í höndum til að fara eftir, en slík gögn eru ekki til að því er snertir húsamatið í kaupstöðunum. Ég vildi því óska eftir upplýsingum um það frá hv. fjm. frv., hvort sú sé ekki meiningin, að starf þessarar n. verði einskorðað við endurskoðun jarðamatsins eingöngu, eins og gert var, er slík yfirskoðun síðast fór fram, en nái ekki til fasteignamatsins yfirleitt. Fái ég slíku yfirlýsingu frá hv. flm. frv., mun ég geta greitt frv. atkv. óbreyttu.