13.08.1931
Neðri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (863)

125. mál, fasteignamat

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Fjhn. leyfir sér að leggja til við hv. d., að frv. á þskj. 125 verði samþ. Hún hefir gert eina efnisbreyt. á frv., og þarf ég í rauninni lítið annað en vísa til nál. hvað það snertir. Það er um að fasteignamatið gangi ekki í gildi fyrr en 1. apríl 1932, í stað þess að í frv. eins og það lá fyrir n. er ætlazt til, að það gangi í gildi 1. febr. N. hefir gert þetta af þeirri ástæðu, að sýnt þykir, að yfirfasteignamatinu muni ekki geta orðið lokið fyrir þann tíma.

Það leiðir vitanlega af sjálfu sér, að við framkvæmd eignarskatts á hinu nýja ári muni ekki verða hægt að fara eftir nýja matinu, enda hefði verið sjálfsagt að fara eftir hinu gamla, þótt miðað væri við 1. febr., því að menn telja fram eftir því ástandi, sem er um áramót. Fasteignaskatt má hinsvegar innheimta vorið 1932 eftir þessu nýja mati.

Að öðru leyti ber n. fram örfáar orðabreyt., sem ég sé ekki ástæðu til þess að tala um frekar.