31.07.1931
Efri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (924)
25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Halldór Steinsson:
Hv. 2. þm. Árn. hefir skýrt hér frá þeirri skoðun sinni, að hann álíti ábyrgð ríkisins bundna við 80 þús. kr., en mér finnst orðalag frv. vera svo, að réttara sé að breyta því og taka þetta afdráttarlaust fram. Það gleður mig að heyra, að hv. flm. leggur þennan skilning í það, en almennt tekið hygg ég, að þetta verði ekki skilið svo, og því þarf að breyta orðalaginu.