28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

1. mál, fjárlög 1932

Forseti (JörB):

Hv. þm. þarf ekki að láta svona. Hann veit það vel, að ég hefi oft orðið við beiðni bæði hans og annara um nafnakall, án þess að fylgja slíkum formsatriðum. En ég minnist þess ekki, að önnur eins till. og þessi hafi komið fram hér, alla þá tíð, sem ég hefi setið á þingi. — Ég vona, að hv. þm. hafi heyrt, að ég sagði, að umr. væri lokið.