17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í B-deild Alþingistíðinda. (948)
25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Frsm. (Guðbrandur Ísberg):
Sjútvn. hefir haft þetta mál til meðferðar, og hefir n. orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. með nokkrum breyt.
Frv. þetta lá fyrir vetrarþinginu og hafði sjútvn. það þá einnig til meðferðar, og lagði meiri hl. n. þá til, að frv. yrði afgr. með rökstuddri dagskrá, þar sem ekki lægju fyrir fullnægjandi upplýsingar í málinu. Vísaði meiri hl. n. í þessu sambandi til viðtals við vitamálastjóra, sem hafði skýrt frá því, að engin áætlun hefði verið gerð um lendingarbætur á þessum stað. Aftur fylgdi frv. þá kostnaðaráætlun um byggingu varnargarðs til þess að varna því, að Ölfusá bæri sand inn í höfnina. En bygging slíks varnargarðs getur ekki talizt til lendingarbóta, þar sem garðurinn mundi aðeins varna því, að höfnin spilltist frá því, sem nú er. Um sjálfar lendingarbæturnar liggur ekkert fyrir nú fremur en í vetur, nema hvað það upplýstist í umr. málsins í Ed., að lengja ætti einhvern bryggjustúf þarna, sprengja einhver sker og dýpka höfnina á einhverjum stöðum. Hinsvegar lítur n. svo á, að nauðsyn beri til að gera lendingarbætur á Eyrarbakka, en gerir jafnframt þá sjálfsögðu kröfu, að það sé tryggt, að þær komi að tilætluðum notum. Hefir n. því lagt til, að frv. verði samþ. með þeim breyt. á 1. gr., að fé verði ekki greitt af höndum í þessu skyni fyrr en málið hefir verið rannsakað ýtarlega og kostnaðaráætlun liggur fyrir um það, hvað þetta verk muni kosta. Í samræmi við þetta leggur n. til, að viðbótarákvæði frv. (ákvæði um stundarsakir) verði felld niður, því að þar sem svo er til ætlazt, að rannsókn fari fram áður en hafizt verður handa um þetta verk, virðist óheppilegt að samþykkja slík ákvæði að svo komnu máli.