17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (954)

25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka

Sveinn Ólafsson [óyfirl.]:

Hv. frsm. sjútvn. hefir vísað því til mín að ákveða, hvort n. taki brtt. sínar aftur til 3. umr. eða ekki. Ég hafði nú búizt við því, að hann ákvæði þetta sjálfur fyrir hönd n., en úr því að hann hefir vísað þessu til mín, þá vil ég lýsa því yfir, að mér finnst engin ástæða til þess að taka brtt. þessar aftur. Þær eru svo ljósar og ótvíræðar, að ekki þarf að fresta atkvgr. um þær þess vegna, og þykir mér því fara bezt á því, að hv. þdm. kveði upp úr um þær nú þegar við þessa umr. Legg ég því á móti því, að þær verði geymdar til 3. umr.

Að því er snertir „ákvæði um stundarsakir“, sem n. hefir lagt til, að fellt sé úr frv. og álítur óþarft, ef brtt. n. við 1. gr. verður samþ., þá gæti ég fallizt á að halda því öðruvísi orðuðu, með því að svo hljóðandi skrifleg brtt. kæmi í staðinn:

„Til byrjunar á landgarðinum til þess að aftra sandburði úr Ölfusá er stjórninni heimilt að greiða án sérstakrar fjárlagaveitingar allt að 1/4 af framlagi ríkissjóðs til lendingarbótanna, gegn jafnmiklu framlagi annarsstaðar að og öðrum sömu skilyrðum og lög þessi tilskilja“.

Ef „ákvæði um stundarsakir“ er orðað á þennan hátt, þá hefi ég ekkert á móti því að fallast á það. Vil ég svo afhenda hæstv. forseta þannig orðuð bráðabirgðaákvæði og fallast á, að 2. liður brtt. n. sé tekinn aftur, en ekki fyrri liðurinn.